Siggi Hlö á leiðinni í sjónvarpið 17. júlí 2013 18:00 Siggi Hlö verður í miklu stuði og rifjar upp árin 1975-1990 á Stöð 2 í sumarlok þegar skemmti- og spurningaþátturinn Veistu hver ég var? verður sýndur. mynd/pjetur
Aðdáendur útvarpsþáttarins Veistu hver ég var? með Sigga Hlö geta látið sig hlakka til sumarloka því þá fer í loftið á Stöð 2 samnefndur sjónvarpsþáttur. Þættir með sögum frá diskóárunum og Hallærisplaninu. „Já, nú er komið að því að þátturinn fari á skjáinn,“ segir Siggi, sem er þessa í sólinni á Spáni. Hann er ekki alveg óvanur því að vera í sjónvarpi. Siggi sá um þáttinn Popp og kók árið 1989 til 1991 og Með haustverk um helgar árin 1999-2001. „Þessi nýi þáttur verður byggður á sömu hugmynd og útvarpsþátturinn Veistu hver ég var?. Þetta verður skemmtiþáttur með spurningaívafi. Það verða tvö lið sem keppa en spurningar tengjast árunum 1975-1990. Spurt verður meðal annars um tónlist, tíðaranda, kvikmyndir, fréttir og myndbönd. Við munum skemmta okkur og hlæja að fortíðinni,“ segir Siggi. „Keppendur verða ekki eingöngu þekktir einstaklingar, eins og oft er í slíkum þáttum, heldur verður einn þekktur sem tekur með sér tvo vini sína. Ég stefni á að fá fólk sem var ungt að skemmta sér á þeim tíma sem fjallað verður um. Það er fólk 40 ára og eldri,“ segir Siggi en þátturinn verður á laugardagskvöldum. „Það verða margar skemmtilegar minningar rifjaðar upp í þáttunum en þær geta síðan orðið kveikjan að slíkum sögum heima hjá áhorfendum. Þetta eru sögur sem ungt fólk í dag hefur aldrei heyrt um en þeir eldri eiga eftir að brosa út í annað.“ Plötusnúðurinn DJ Fox verður í diskóbúri í salnum og leikur viðeigandi tónlist. „Hann verður skellihlæjandi á kantinum og á eftir að slá í gegn. Við sem stöndum að undirbúningi þáttarins höfum skemmt okkur konunglega og ég veit að það á eftir að skila sér til áhorfenda. Leikmyndin verður líka rosalega flott.“ Þótt Siggi Hlö verði með nýjan þátt á Stöð 2 halda útvarpsþættirnir áfram á laugardögum, enda þeir allra vinsælustu. Siggi Hlö verður því tvöfaldur á laugardögum en það er heldur ekki hægt að fá nóg af honum.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira