Landhelgisgæslan sprengir síldina burt Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. nóvember 2013 15:37 Síldin í Kolgrafarfirði í fyrra. Mynd/Vilhelm
Ákveðið hefur verið að ráðast í fælingaraðgerðir með djúpsprengingum vegna síldarinnar sem nú er í Kolgrafafirði. Þetta verður gert í því skyni að hrekja síldina sem þar er nú út úr firðinum. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur tekið yfir samhæfingu aðgerða vegna síldarinnar. Landhelgisgæslan mun sjá um framkvæmd þeirra aðgerða sem gert er ráð fyrir að fari fram á morgun. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að smölun síldar með djúpsprengjum sé þekkt aðferð sem áður var notuð með góðum árangri við nótaveiðar en er nú víðast hvar bönnuð sem veiðiaðferð. Eru því nokkrar vonir bundnar við að hægt sé að hrekja síldina út úr firðinum með þessum hætti. Varðskipið Þór mun í dag leggja af stað áleiðis til Kolgrafafjarðar vegna aðgerðanna og munu bátar á vegum Landhelgisgæslunnar koma smásprengjunum fyrir í firðinum á morgun. Vegna aðgerðanna verður Kolgrafafjörður lokaður á morgun fyrir bátaumferð og veiði og vegurinn innan fjarðar verður sömuleiðis lokaður almennri umferð. Eftir sem áður verður opið fyrir umferð um brúna sjálfa, en ekki verður heimilt að stöðva ökutæki á brúnni. Aðgerðirnar voru ræddar í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í morgun á fundi með fulltrúum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, Hafrannsóknarstofnunar, Umhverfisstofnunar, Vegagerðarinnar, Landhelgisgæslunnar, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sýslumanns Snæfellinga, Stykkishólmi. Þá voru aðgerðirnar kynntar og ræddar á fundi með heimamönnum í Kolgrafafirði nú í eftirmiðdag. Fylgst verður grannt með árangri aðgerðanna, magni síldar og súrefnisstöðu fjarðarins í því skyni að geta gripið til aðgerða á ný með skömmum fyrirvara þegar og ef þurfa þykir.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Artemis II er á heimleið Erlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Sjá meira