Gerðu hálmdyngju fyrir álftir Magnús Þ. Lúðvíksson skrifar 10. maí 2013 06:00 Álftirnar á nýja hreiðurstaðnum sem þeir Gunnsteinn og Baldur bjuggu þeim.Mynd/Baldur Þórarinsson „
Dóttir mín var á leið til Dalvíkur að morgni dags og sá álft liggja í snjó uppi á skör við lítinn poll. Álftin var eitthvað að velta sér og þá veitti dóttir mín því eftirtekt að hún var með egg milli fótanna,“ segir Gunnsteinn Þorgilsson, bóndi að Sökku í Svarfaðardal, sem vann á dögunum lítið góðverk við annan mann, Baldur Þórarinsson frá Bakka. Svarfaðardalur er enn undirlagður snjó eftir óvanalegt árferði síðustu vikur. Fyrir vikið hafa fuglar á svæðinu ekki getað snúið aftur á hreiðurstaði sína eftir veturinn enda þeir undir snjófargi. Gunnsteinn segir að dyngja álftarinnar sé undir snjó og að sennilega séu einhverjar vikur í að álftin geti verpt í hana. „Dóttir mín sagði okkur frá þessu og einnig Baldri frá Bakka. Síðan talar Baldur við Ólaf Karl Nielsen hjá Náttúrufræðistofnun sem spyr hvort ekki sé hægt að gera eitthvað fyrir álftina.“ Gunnsteinn segir að þeir Baldur hafi því næst farið með góðan slatta af kornhálmi og komið fyrir í grennd við þann stað þar sem álftin hafði gert sér dyngju í fyrra. „Svo þurftum við að láta álftina vita af þessu einhvern veginn þannig að ég einfaldlega rak álftirnar 200 metra að hálminum og þær fóru strax upp í hann og hreiðruðu um sig. Þær eru að vísu ekki farnar að verpa enn þá en það kæmi manni ekki á óvart enda huggulegur hreiðurstaður,“ segir Gunnsteinn.-
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Lífið Fleiri fréttir Vill draga úr hvalveiðum en segir hendur sínar bundnar fyrir sumarið Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Sjá meira