Innlent

Gerðu hálmdyngju fyrir álftir

Magnús Þ. Lúðvíksson skrifar
Álftirnar á nýja hreiðurstaðnum sem þeir Gunnsteinn og Baldur bjuggu þeim.Mynd/Baldur Þórarinsson
Álftirnar á nýja hreiðurstaðnum sem þeir Gunnsteinn og Baldur bjuggu þeim.Mynd/Baldur Þórarinsson
„Dóttir mín var á leið til Dalvíkur að morgni dags og sá álft liggja í snjó uppi á skör við lítinn poll. Álftin var eitthvað að velta sér og þá veitti dóttir mín því eftirtekt að hún var með egg milli fótanna,“ segir Gunnsteinn Þorgilsson, bóndi að Sökku í Svarfaðardal, sem vann á dögunum lítið góðverk við annan mann, Baldur Þórarinsson frá Bakka.

Svarfaðardalur er enn undirlagður snjó eftir óvanalegt árferði síðustu vikur. Fyrir vikið hafa fuglar á svæðinu ekki getað snúið aftur á hreiðurstaði sína eftir veturinn enda þeir undir snjófargi.

Gunnsteinn segir að dyngja álftarinnar sé undir snjó og að sennilega séu einhverjar vikur í að álftin geti verpt í hana. „Dóttir mín sagði okkur frá þessu og einnig Baldri frá Bakka. Síðan talar Baldur við Ólaf Karl Nielsen hjá Náttúrufræðistofnun sem spyr hvort ekki sé hægt að gera eitthvað fyrir álftina.“

Gunnsteinn segir að þeir Baldur hafi því næst farið með góðan slatta af kornhálmi og komið fyrir í grennd við þann stað þar sem álftin hafði gert sér dyngju í fyrra. „Svo þurftum við að láta álftina vita af þessu einhvern veginn þannig að ég einfaldlega rak álftirnar 200 metra að hálminum og þær fóru strax upp í hann og hreiðruðu um sig. Þær eru að vísu ekki farnar að verpa enn þá en það kæmi manni ekki á óvart enda huggulegur hreiðurstaður,“ segir Gunnsteinn.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×