Krefst 1,5 milljóna króna í miskabætur vegna harkalegrar handtöku Kristján Hjálmarsson skrifar 25. september 2013 10:45
Mál lögreglumannsins sem ákærður er fyrir líkamsárás og brot í starfi á Laugavegi í sumar verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa farið offari og ekki gætt lögmætra aðferða við handtöku á konu á þrítugsaldri. Í ákæru kemur fram að hann hafi rykkt án fyrirvara í hægri handlegg konunnar þannig að hún féll með bakhlutann á bekkarm og þaðan í götuna. Ákærði hafi síðan dregið hana stuttan spöl eftir götunni, sett vinstra hné á bak hennar, hægra hné á hnakka hennar og handjárnað hana án þess að aðstæður krefðust þess. Hann hafi auk þess sett konuna á magann með höfuðið á undan inn í lögreglubifreið, að því er segir í ákærunni. Konan hlaut mar á hægri upphandlegg, mar á hægri mjaðmakamb, mar utanvert á hægra hné, bólgu á hægra augnloki og mar yfir hægra kinnbein. Ríkissaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan krefst 1,5 milljóna króna í skaða- og miskabætur.
Tengdar fréttir Harkaleg handtaka í miðborginni vekur athygli Myndband af íslenskum lögreglumönnum í miðborginni um helgina hefur vakið mikla athygli á Facebook í kvöld. 7. júlí 2013 23:39 Fumlaus handtaka Mjög ofarlega í umræðunni í dag er handtaka lögreglumanns sem náðist á myndband. Umræðan er mjög á einn veg og orð eins og „ótrúlega harkaleg handtaka“ verið notuð. 11. júlí 2013 06:00 Mest lesið Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent „Nú hafi orðið bakslag“ Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Innlent Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Innlent Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Erlent Fleiri fréttir Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Bein útsending: Ræðir glæpi gegn náttúrunni Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki „Nú hafi orðið bakslag“ Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Útilokar oddvitaframboð í borginni Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Setning Arndísar Báru framlengd um ár Grikkinn verður ákærður fyrir manndráp Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Úrgangur frá sjókvíaeldi samsvarar skólpi frá allt að tífaldri íbúatölu Noregs Tilraun til manndráps í Túnunum og óánægja með vaxtahækkun Asahláka og vatnavextir geti skapað hættu á vegum Alvarlegir annmarkar á brunavörnum á Stuðlum Einstefna komumegin við Keflavíkurflugvöll Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Þau skipa lista Sjálfstæðismanna í Múlaþingi Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Hættustigi aflýst og rýmingu aflétt á Ísafirði Afgreiðslu frestað um viku Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Sjá meira
Harkaleg handtaka í miðborginni vekur athygli Myndband af íslenskum lögreglumönnum í miðborginni um helgina hefur vakið mikla athygli á Facebook í kvöld. 7. júlí 2013 23:39
Fumlaus handtaka Mjög ofarlega í umræðunni í dag er handtaka lögreglumanns sem náðist á myndband. Umræðan er mjög á einn veg og orð eins og „ótrúlega harkaleg handtaka“ verið notuð. 11. júlí 2013 06:00
Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar