Speglanir drógust saman um þriðjung Haraldur Guðmundsson skrifar 16. desember 2013 08:53 Landspítalinn framkvæmdi yfir sjö þúsund speglanir árið 2001 en einungis 4.377 árið 2005.
Fjöldi ákveðinna speglana á Landspítalanum dróst saman um 33 prósent árið eftir að stjórn spítalans ákvað að hætta að greiða læknum í samræmi við unnin verk á göngudeildum og greiða eingöngu föst laun. Speglunum á einkastofum fjölgaði hins vegar um 167 prósent. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn hagfræðinganna Unu Jónsdóttur og Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur þar sem fjöldi meltingarvegs- og berkjuspeglana á árunum 2000 til 2005 var skoðaður. Þar er litið á desembermánuð 2002 sem vendipunkt því þá ákvað stjórn Landspítalans að fara í breytingar á launagreiðslum til lækna og afnema svokallaða ferliverkasamninga. „Þá færðust þessi læknisverk í auknum mæli inn á einkastofur þar sem læknar fengu greitt í samræmi við unnin verk,“ segir Una Jónsdóttir og heldur áfram: „Ef þú ert að fá greitt fyrir hvert læknisverk þá gætirðu haft hvata til að toga í fleiri læknisheimsóknir eða sinna fleiri sjúklingum en þörf er á. Ef þú ert á föstum launum, óháð því hversu mörgum sjúklingum þú sinnir, þá getur maður ímyndað sér að launin hafi þau áhrif að læknir taki á móti færri sjúklingum. Við erum ekki að segja að eitthvað eitt kerfi sé betra en annað en erum einungis að sýna að greiðslur til lækna geta verið mikilvægur áhrifaþáttur í meðferð sjúklings,“ segir Una. Hún og Tinna Laufey benda einnig á að aðstaða til speglana á spítalanum hafi hugsanlega verið vannýtt eftir að ferliverkasamningunum lauk. „Við sáum að spítalinn hafði bolmagn til að framkvæma allt að 7.475 speglanir árið 2001 en framkvæmdi einungis 4.377 árið 2005. Þannig má hugsa sér að sóun hafi falist í því að koma upp aðstöðu á einkastofum þegar hún var hugsanlega tiltæk á Landspítalanum.“ Una undirstrikar að rannsóknin hafi einnig leitt í ljós að heildarfjöldi speglana hafi aukist á þessum tíma, en það sé ekki víst að sú aukning hafi verið vegna breytts greiðslufyrirkomulags þar sem speglunum á Sjúkrahúsinu á Akureyri fjölgaði einnig á umræddu tímabili þrátt fyrir að ferliverkasamningarnir séu þar enn í gildi. „Heildaraukning speglana gæti því verið af öðrum orsökum sem ekki voru til athugunar í rannsókninni. Eftir stendur þó þessi mikla tilfærsla verka á milli þjónustueininga sem verður tæplega skýrð með öðrum hætti en vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi.“ Hér má einnig heyra þegar Sigurjón M. Egilsson fjallaði um rannsóknina í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Innlent Fleiri fréttir „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Sjá meira