Lífið

Stjórnmálamenn hugsa eins og Meistarar

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Björt Ólafsdóttir í Bjartri Framtíð
Björt Ólafsdóttir í Bjartri Framtíð Mynd: Hörður Sveinsson
Björt Ólafsdóttir tók til máls á Alþingi í gær við stefnuræðu forsætisráðherra fyrir hönd Bjartrar Framtíðar.

„Í gær, á fyrsta degi nýs þings, hófst Meistaramánuðurinn svokallaði. Með honum er fólk hvatt til að setja sér markmið, til þess að verða besta útgáfan af sjálfu sér. Ríkisstjórnin hefur sett sér markmið við stjórnun landsins næstu fjögur árin. Þessi markmið endurspegla kannski best málamiðlun þessa tveggja flokka í ríkisstjórn, en þau stefna ekki að bestu útgáfunni af íslensku samfélagi. Þau eru ekki nægilega róttæk eða hugrökk,“ lagði Björt til málanna.

En Meistaraáskorun dagsins í gær hljóðaði svo:

Í tilefni þingsetningar skorum við á Alþingi að taka sér þátttakendur Meistaramánaðar til fyrirmyndar og einblína á lausnir og jákvæð samskipti í stað eilífs þras og leiðinda.

Björt segir í samtali við Vísi að hún sé að taka léttan Meistaramánuð í ár.

„Það eru allir að tala um þennan Meistaramánuð og mér finnst þetta flott framtak,“ segir Björt.

„Ég er ekki formlega skráð á Facebook - því miður - en ég er með markmið. Ég er til að mynda í vinnu sem tekur dálítið yfir, þannig að ég er með markmið eins og að vera á staðnum, eins og sagt er, þegar ég er að gera annað eins og með syninum, þegar hann er í einhverjum meistaralegum pælingum,“ segir Björt jafnframt.

„Ég er líka að taka upp markmið sem gamall vinnufélagi minn var með. Mér fannst það mjög stórt á sínum tíma og ég trúði honum ekki í fyrstu, en hann sagðist ætla að hreyfa sig á hverjum einasta degi í eitt ár,“ útskýrir Björt.

Hún ætlar að taka þetta upp eftir honum og hreyfa sig á hverjum einasta degi í Meistaramánuði.

„En stundum þarf að láta sér nægja, þegar það er brjálað að gera í þinginu, að taka alltaf tröppurnar upp á fimmtu hæð þar sem við erum með skrifstofur. Aðra daga get ég farið út að hlaupa. Það þarf að vera smá auðmýkt í skipulagningunni,“ segir Björt, létt í bragði.

Hér að neðan má sjá ræðu Bjartar frá því í gær í heild sinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.