"Svartur dagur fyrir Reykvíkinga" Jakob Bjarnar skrifar 25. júlí 2013 13:47 Baráttan fyrir Nasa er töpuð. Sóley og Inga á Nasa segir borgaryfirvöld haft vilja mótmælenda að engu.
Inga á Nasa er beygð, en ekki brotin, nú þegar ljóst er að baráttan fyrir Nasa virðist hafa verið til lítils. Sóley Tómasdóttir segir borgarstjórn hafa samþykkt nýtt deiliskipulag "í kyrrþey". Þetta er þrátt fyrir gríðarleg mótmæli en tónlistarmenn meðal annarra hafa grátbeðið um að borgaryfirvöld þyrmi Nasa, en viðbygging hússins - tónleikasalurinn - verður rifin samkvæmt skipulagi. Sóley segir að meirihlutann hafa fellt tillögur sínar og Vinstri grænna um íbúakosningu annars vegar og að málið yrði afgreitt á borgarstjórnarfundi í heyranda hljóði, hins vegar. Sóley lagði fram bókun þar sem segir meðal annars: "Fá mál hafa kallað á fleiri athugasemdir og háværari mótmæli en sú deiliskipulagsáætlun sem nú hefur verið samþykkt. Meirihluti borgarráðs fer sínu fram, þrátt fyrir undirskriftir 18.000 borgarbúa gegn áformunum, 240 athugasemdir frá hagsmunaaðilum, fjölmennan útifund og mótmælaaðgerðir og einkar afdráttarlausa umsögn frá Minjastofnun Íslands. Þröngir hagsmunir og hagnaðarvon lóðareigandans vega þyngra en hagsmunir almennings, menningararfur þjóðarinnar og götumynd í hjarta miðborgarinnar. Og allt fer þetta fram á lokuðum fundi á mesta sumarleyfistíma borgarbúa, þar sem frekari mótmælum verður ekki við komið og án þess að komið sé til móts við þær athugasemdir sem borist hafa." Ingibjörg Örlygsdóttir, sem jafnan gegnir nafninu Inga á Nasa en hún hefur staðið fyrir veitingarekstri lengi í húsinu, segir að hún hafi lengi vel haldið í þá von að borgaryfirvöld færu ekki þennan veg. Nú séu litlar sem engar líkur á því að húsinu verði bjargað; tillagan sé samþykkt og hótel muni rísa. Þetta sé svartur dagur fyrir alla velunnara lifandi tónlistarflutnings, sem og Reykvíkinga almennt. "Maður fær vonda tilfinningu; 18 þúsundu undirskriftir, mótmæli 200 tónlistarmanna, mótmælatónleikar fyrir fullum Austurvelli... það hefur ekkert að segja. Það er rosalega spes." Ingu gremst þetta, og til hvers? "Til að rífa niður einn fallegasta sal í borginni, til að byggja þar eitthvað hótel. Ef byggingin verður eins há og til stóð í fyrstu þá verður skuggi þessa fáu sólardaga á Austurvelli eftir hálf þrjú," segir Inga.
Mest lesið Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Innlent Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Innlent Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Innlent Greiðvikni kom í bakið á fjórum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent