Viðbúið að héraðsdómur hafni ósk verjendanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. apríl 2013 15:16 Gestur Jónsson og Ragnar Hall tilkynna ákvörðun sína á blaðamannafundi.
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur viðbúð að Héraðsdómur Reykjavíkur muni synja beiðni hæstaréttarlögmannanna Gests Jónssonar og Ragnars Hall um að fá að segja sig frá al-Thani málinu. Þeir Gestur og Ragnar, sem eru verjendur Sigurðar Einarssonar og Ólafs Ólafssonar, héldu blaðamannafund í dag þar sem þeir kynntu þessa ákvörðun sína. „Vegna þess að þeir féllust á að vera skipaðir verjendur og hafa tekið að sér þann starfa. Augljóslega myndi það tefja framgang málsins ef dómari færi að skipta um verjendur í miðri á. Þetta þyrftu að vera einhverjar ástæður sem dómstóllinn féllist á, eins og það að menn yrðu lasnir eða með aðrar lögmætar ástæður. en ástæðurnar, sem maður les um í fjölmiðlum, eru aðrar," segir Sveinn Andri í samtali við Vísi. Hann segist lesa það út úr fréttum sem hann hafi séð af málinu að ástæður lögmannanna séu bræði yfir því að Hæstiréttur skyldi hafa kveðið upp úrskurð um málsmeðferðina áður en aðalmeðferð hófst. „En þegar hæstaréttarlögmenn eru skipaðir lögmenn verða þeir að sætta sig við það að Hæstiréttur hefur lokaorðið þegar kemur að meðferð sakamála," segir Sveinn Andri. „Það er ekkert nýtt að verjendur hafi orðið ósáttir við niðurstöðu Hæstaréttar en svona eru bara leikreglurnar," segir Sveinn Andri. Sveinn Andri segist sjálfur hafa reynt að segja sig frá máli, stóru fíkniefnamáli fyrir fáeinum misserum, en dómari hafi hafnað því. Máli sínu til stuðnings vísar Sveinn Andri í 20. grein laga um lögmenn og 34. grein sakamálalaga. Þær má sjá hér að neðan: 20. gr. Lögmanni er skylt að taka við skipun [eða tilnefningu]1) sem verjandi eða réttargæslumaður í [sakamáli],2) enda fullnægi hann til þess hæfisskilyrðum og hafi ekki ósamrýmanlegra hagsmuna að gæta vegna sjálfs sín, venslamanna sinna eða annars umbjóðanda síns. - Að öðru leyti en leiðir af 1. mgr. er lögmanni aldrei skylt að taka að sér verk sem leitað er til hans um. 34. gr. Nú óskar sakborningur eftir því að skipun eða tilnefning verjanda verði afturkölluð og nýr verjandi skipaður eða tilnefndur og skal þá verða við slíkri ósk nema hætta sé á að málið tefjist af þeim sökum. Ef ætla má að verjandi muni hindra eða hafi hindrað rannsókn máls með ólögmætum hætti eða hafi brotið gegn starfsskyldum sínum á annan hátt getur ákærandi eða lögregla leitað atbeina dómara og krafist þess að hann verði leystur frá störfum og annar skipaður í hans stað. Verjandinn getur krafist þess að dómari úrskurði um þá kröfu.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira