Ærin fékk nafnið Fönn Heimir Már Pétursson skrifar 19. febrúar 2013 15:52 Frá björgunaraðgerðum á norðausturlandi síðastliðið haust. „
Ég var bara á trippi hérna, á reiðtúr, fór ekki alveg hefðbundna leið og sá að það var komið gat á skafl sem ég reið framhjá. Ég fór af baki, kíkti ofan í og sá að það var lifandi kind ofan í skaflinum," segir Jóhann F. Þórhallsson bóndi á Brekkugerði í Fljótsdal. Ein af ám Jóhanns fannst á lífi eftir 82 daga veru í snjó líkt og greint var frá á Vísi fyrr í dag. Jóhann náði kindinni upp úr skaflinum og þótt hún væri orðin rýr og fremur illa á sig komin fylgdi hún Jóhanni um 500 metra heim í fjárhús. „Jú, það er alveg ótrúlegt að hún skildi lifa þetta af. Hún var búin að missa jórtur þegar hún kom í hús. Ég hafði samband við dýralækni. Gaf henni svo hafraseyði og AB-mjólk. Það voru átta dagar þar til hún var farin að jórtra og er núna komin ágætlega af stað," segir Jóhann en ætli ærin hafi verið nefnd? „Hún er kölluð Fönn þessa dagana. Annas hafði hún ekki sérstakt nafn fyrir. Vara bara númeruð," segir Jóhann. Aðspurður hvort ærin sé orðin spikuð á nýjan leik segir bóndinn: „Hún er kannski ekki orðin spikuð en farin að braggast vel. Er orðin hin hressasta."
Tengdar fréttir Lifði af 82 daga í snjó Jóhann F. Þórhallsson, bóndi á Brekkugerði í Fljótsdal. kom auga á auga í snjóskafli á dögunum. Þar var á ferðinni ein af sjö ám sem ekki höfðu komið í leitirnar við hýsingu fjár þann 1. nóvember. 19. febrúar 2013 12:16 Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Erlent Fleiri fréttir Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sjá meira
Lifði af 82 daga í snjó Jóhann F. Þórhallsson, bóndi á Brekkugerði í Fljótsdal. kom auga á auga í snjóskafli á dögunum. Þar var á ferðinni ein af sjö ám sem ekki höfðu komið í leitirnar við hýsingu fjár þann 1. nóvember. 19. febrúar 2013 12:16