Lífeindafræðingar fá skráð skróp í kladdann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. janúar 2013 11:44
Lífeindafræðingar á Landspítalanum hafa undanfarna mánuði fundað vegna óánægju sinnar með kjaramál. Fundirnir hafa farið fram á vinnutíma og í óþökk framkvæmdastjóra rannsóknardeildar spítalans. Í fréttatilkynningu sem lífeindafræðingar sendu frá sér í síðustu viku kom fram að fundað hefði verið einn til þrjá morgna í viku vegna kjaramálanna. Viðræður samstarfsnefndar lífeindafræðinga á Landspítalanum, sem staðið hafa yfir í þónokkurn tíma, eru sagðar engu hafa skilað. Fundunum hafi því verið haldið áfram. Ásbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs Landspítala, tilkynnti í síðustu viku að yrði ekki gert hlé á fundarhöldunum ættu yfirmenn hverrar deildar að skrá fjarveru starfsmanna. Tíminn yrði dreginn af launum. Í bréfi sem Ásbjörn sendi til stjórnenda á rannsóknarsviði á mánudag kemur fram árétting um að ekki verði lengur við unað að lífeindafræðingarnir sæki hópfundi tengda kjarabaráttu án samráðs við stjórnendur. Spítalinn sjái sér ekki annað fært „en en að líta á slík fundarhöld á vinnutíma sem ólögmæta fjarvist frá vinnu," eins og segir orðrétt í bréfi Ásbjörns til stjórnenda sem fréttastofa hefur undir höndum.
Mest lesið Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Innlent Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Innlent Fleiri fréttir „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Sjá meira