Lífið

Fyrirsæta fór á þing

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birgitta Jónsdóttir þingmaður.
Birgitta Jónsdóttir þingmaður.
„Ég komst í úrslitin, en ég rakaði á mig móhíkana til að losna við það," segir Birgitta Jónsdóttir. Vísir fékk í dag senda gamla síðu úr Morgunblaðinu frá því að Elite keppnin var haldin haustið 1983. Nokkrir stelpur tóku þátt sem áttu síðar eftir að verða töluvert þekktar. Þar á meðal voru Birgitta Jónsdóttir þingmaður, Brynja Sverrisdóttir fyrirsæta, Anna Margrét Jónsdóttir, sem síðar varð ungfrú Ísland, og Hólmfríður Karlsdóttir sem síðar varð ungfrú heimur.

„Við vorum tvær eða þrjár sem komumst í úrslit en þetta var ekki eitthvað sem mig langaði í. Ég gerði þetta fyrir mömmu," segir Birgitta. „Ég var orðinn pönkari á þessum tíma og mér leið ekki vel með þetta," bætir hún við. Hún segir að Bryndís Schram hafi á þessum tíma verið framkvæmdastjóri keppninnar og hafi fengið sig til þátttöku.

Ætlaði í leiklist en varð skáld

Hún segir að það hafi verið svolítið áfall þegar hún hafi fengið símtal um að svo voru bara einhverjir pönkarar heima hjá mér og ég spurði þá bara hvort þeir gætu rakað á mig móhíkana. „Þannig að ég varð fyrsta íslenska konan sem var rökuð eins og móhíkani," segir Birgitta og hlær.

Hún segir að ein mynd hafi verði tekin af sér með móhíkanahárið og birst í fjölmiðlum. Hún hafi verið að leita að myndinni að undanförnu en ekki fundið hana og auglýsir nú eftir henni. „Ég var miklu meira að hugsa um að fara í leiklist á þessum tíma en hætti svo bara við það og varð skáld," segir Birgitta.

Hér má sjá umfjöllun Morgunblaðsins um keppnina.

Þátttakendur í Elite keppninni 1983





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.