Innlent

Hvaða skóli vinnur Skrekk ? - Úrslitin ráðast í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndin er tekin á Skrekk árið 2009.
Myndin er tekin á Skrekk árið 2009. MYND/HENNÝ
Úrslitin í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, fara fram í kvöld í Borgarleikhúsinu en átta skólar verða í eldlínunni.

Þeir skólar sem taka þátt á úrslitakvöldinu er Réttarholtsskóli, Fellaskóli, Laugalækjarskóli, Seljaskóli, Ingunnarskóli, Langholtsskóli, Hlíðarskóli og Hagaskóli.

Skólarnir þurftu að fara í gegnum undankeppni til að komast í úrslitakvöldið en Austurbæjarskóli vann keppnina fyrir ári síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×