Innlent

Kona ógnaði mönnum með hnífi í Laugardal

Ölvuð kona tók upp á því að ógna ungum mönnum með hnífi í grennd við sundlaugarnar í Laugadal á ellefta tímanum í gærkvöldi. Kallað var á lögreglu sem handtók hana og sakaði engan. Hnífurinn var vasahnífur, en ekki liggur fyrir hvað konunni gekk til. Hún var vistuð í fangageymslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×