Neitar alfarið að hafa eignast barn: "Ég reyni bara að vera" 28. febrúar 2012 10:33 Agne í þingfestingu málsins ásamt verjanda sínum. Mynd/Vilhelm „
Mér finnst enn þá mjög erfitt að skilja hvað gerðist," sagði Agné Krataviciuté þegar hún bar vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem réttað er yfir henni fyrir að hafa orðið barni sínu að bana síðasta sumar. Viðbrögð Agné virðast einkennast af afneitun, en hún neitar alfarið að hafa eignast barnið. Hún lýsti því þó fyrir dómi að hún hefði fundið fyrir miklum verkjum á hótelherberginu umræddan dag. Henni hafi blætt og mikill svimi sótt að henni. Hún neitar þó alfarið að hafa fætt barnið og að hafa veitt því hryllilega áverka, en hún er einnig ákærð fyrir að hafa skorið í munnvik kornabarnsins með hníf áður en hún kom því fyrir í ruslageymslu hótelsins. Agné var róleg þegar hún bar vitni. Hún brast í grát þegar talið barst að móður hennar sem er búsett í Litháen. Hún lýsti því þannig að hún hefði orðið ástfangin af kærasta sínum, hætt námi í markaðsfræðum og farið til Íslands. Móðir hennar var afar ósátt við að hún hefði hætt námi. Saksóknari spurði ítrekað um einkenni hennar þegar hún átti að hafa verið ólétt. Agné sagðist ekki kannast við breytingar á líkama sínum. Að lokum spurði saksóknari hana hvort hún fyndi fyrir einhverri sektarkennd vegna barnsins, Agné svaraði því þá til að hún vissi ekki hvernig sér ætti að líða. „Ég eignaðist ekki barn." Saksóknari lyfti þá upp mynd af illa förnum líkama barnsins og spurði hvort myndin vekti einhverjar tilfinningar hjá Agné. Hún sýndi engin viðbrögð. Verjandi Agné spurði hana samskonar spurninga. Að lokum spurði hann Agné hvernig henni liði. „Ég reyni bara að vera," svaraði Agné. Túlkurinn hennar útskýrði þá orðin á ensku, „hún er að reyna að segja, I´m just existing."
Tengdar fréttir Aðalmeðferð hafin í Hótel Frón málinu Aðalmeðferð í máli Agné Krataviciuté hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Agné hefur verið ákærð fyrir manndráp, með því að hafa veitt nýfæddum syni sínum tvo skurðáverka á andlit með bitvopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar. 28. febrúar 2012 09:14 Harmleikur á Hótel Frón: Móðirin er sakhæf Agné Krataviciuté, litháísk kona, sem ákærð hefur verið fyrir að skilja nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í sumar, er sakhæf. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar mál hennar var tekið fyrir. 24. janúar 2012 10:23 Áfram réttað yfir Agné Framhald aðalmeðferðar fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Agné Krataviciuté, sem hefur verið ákærð fyrir að bana nýfæddu sveinbarni sínu í júlí á síðasta ári, veita því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. 29. febrúar 2012 09:26 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Hótel Frón málinu Aðalmeðferð í máli Agné Krataviciuté hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Agné hefur verið ákærð fyrir manndráp, með því að hafa veitt nýfæddum syni sínum tvo skurðáverka á andlit með bitvopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar. 28. febrúar 2012 09:14
Harmleikur á Hótel Frón: Móðirin er sakhæf Agné Krataviciuté, litháísk kona, sem ákærð hefur verið fyrir að skilja nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í sumar, er sakhæf. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar mál hennar var tekið fyrir. 24. janúar 2012 10:23
Áfram réttað yfir Agné Framhald aðalmeðferðar fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Agné Krataviciuté, sem hefur verið ákærð fyrir að bana nýfæddu sveinbarni sínu í júlí á síðasta ári, veita því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. 29. febrúar 2012 09:26