Innlent

Ætlar að kæra meint harðræði lögreglunnar og neitar að fara í meðferð

Maðurinn heldur því fram að hann hafi verið beittur harðræði á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.
Maðurinn heldur því fram að hann hafi verið beittur harðræði á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.
Maðurinn sem heldur því fram að hafa verið beittur harðræði í varðhaldi lögreglunnar á dögunum ætlar að kæra meðferð lögreglunnar til ríkissaksóknara. Þetta kom fram í viðtali sem tekið var við hann í Harmageddon á útvarpstöðinni X-inu í gær.

Reykjavík síðdegis greindi frá því fyrr í vikunni að Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hafnaði því alfarið að maðurinn hefði verið beittur harðræði eins og fram kom í viðtali við manninn bæði í útvarpsþættinum Harmageddon og á vefnum Pressunni.

Sjálfur vildi maðurinn meina að hann hefði verið beittur óþarfa ofbeldi af hálfu lögreglunnar auk þess sem hann hafi verið klæddur úr öllum fötum áður en hann var vistaður í fangaklefa. Að auki vildi maðurinn meina að vatni hefði verið sprautað inn í klefa hans.

Hörður vísaði þessum ásökunum alfarið á bug í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og benti meðal annars á að myndbandseftirlitskerfi í húsinu styddu það. Ástæðan fyrir því að maðurinn var klæddur úr fötunum var sú, að sögn Harðar, að maðurinn þótti líklegur til þess að skaða sig sjálfann. Síðar um nóttina hafi læknir verið kallaður og var hinn handteknir í kjölfarið færður á viðeigandi stofnun.

„Þeir eru bara að reyna að mála mig upp sem geðsjúkling," sagði maðurinn í viðtali við Harmageddon en hann kom ekki fram undir nafni. Maðurinn játaði að hafa stundað kannabisreykingar í fjölda ára en lögreglan hefði aldrei haft afskipti af honum vegna annarra brota en fíkniefnatengdum brotum að hans sögn.

Þáttastjórnendur Harmageddon, Þeir Þorkell Máni Pétursson og Frosti Logason gengu þá hart á manninn og sögðust hafa heimildir fyrir því að hann hefði meðal annars haft í hótunum við nákomna ættingja og unnið skemmdarverk á eignum opinberrar stofnunar og valdið starfsmanni hennar líkamstjóni. Þessu neitaði maðurinn staðfastlega.

Þeir spurðu svo í kjölfarið hvort það gæti ekki verið að maðurinn þyrfti að leita sér aðstoðar vegna fíkniefnaneyslu sinnar. Maðurinn þvertók fyrir það þrátt fyrir eindregna hvatningu þáttastjórnenda sem sögðu honum að það væri ekki vitlaust að leita sér aðstoðar á meðferðarstofnuninni á Vogi. Maðurinn tók fálega í hugmyndina og svaraði: „Ég ætla ekki að gera lítið úr Vogi, en það sem gerist þar, get ég alveg eins gert hér heim og horft á sjónvarpið í leiðinni."

Hægt er að hlusta á fróðlegt viðtal við manninn hér fyrir ofan og á útvarpssíðu Vísis.


Tengdar fréttir

Segir frásögn Pressunnar um gróft ofbeldi fullkomlega ranga

"Þessu er fljótt svarað, þessi frétt er nánast í engu samræmi við veruleikann,“ sagði Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, þegar Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni hafði samband við hann vegna hryllilegrar lýsingar manns sem birtist á vefnum Pressunni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×