Niðurskurður hafði hvorki áhrif á álag starfsmanna né þjónustu Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. febrúar 2012 21:08 Niðurskurður á framlögum til hjúkrunarheimila virðist hvorki hafa haft áhrif á álag á starfsfólk né þjónustu sem veitt var.
Þótt opinberar fjárveitingar til hjúkrunarheimila hafi dregist saman að raungildi milli áranna 2008-2010 verður ekki sé að álag á starfsmenn heimilanna hafi aukist á tímabilinu, né að þjónusta hafi skerst. Þetta eru niðurstöður Ríkisendurskoðunar sem vann skýrslu að beiðni forsætisnefndar Alþingis. Í skýrslunni er fjallað um rekstur hjúkrunarheimila fyrir aldraða á tímabilinu 2008-10, meðal annars breytingar á tekjum þeirra, kostnaði og mönnun. Úttektin náði einkum til 34 hjúkrunarheimila af samtals 43 sem starfrækt voru í landinu árið 2010. Tekjur þessara heimila eru að langstærstum hluta opinber framlög. Í heild jukust þau um 6% milli áranna 2008 og 2010. Hins vegar hækkaði vegin vísitala verðlags og launa um 12,5% á sama tíma og því er ljóst að framlögin drógust saman að raungildi. Heildartekjur heimilanna jukust að jafnaði um 7% á tímabilinu og kostnaður þeirra um svipað hlutfall. Heimilunum gekk almennt betur að laga rekstur sinn að tekjum í lok tímabilsins en við upphaf þess. Á vef Ríkisendurskoðunar segir að framboð hjúkrunarrýma á landsvísu hafi nánast staðið í stað milli áranna 2008 og 2010. Á sama tíma hafi ellilífeyrisþegum fjölgað og meðalaldur þeirra hækkað. Engu að síður hafi fleiri aldraðir fengið hjúkrunarrými árið 2010 en árið 2008 og biðlistar styst.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira