Innlent

Deilur FME við Gunnar ekki gott fyrir trúverðugleika eftirlitsins

Steingrímur J. Sigfússon segir ekki gott fyrir trúverðugleika Fjármálaeftirlitsins að deilur standi milli forstjóra og stjórnar. Þá metur hann það ekki sem svo að eftirlitsstofnanir hafi verið illa undirbúnar fyrir gengislánadóm Hæstaréttar í síðustu viku.

Eftir að fréttir bárust af uppsögn forstjóra Fjármálaeftirlitsins í lok síðustu viku hafa opinberar deilur staðið milli stjórnar eftirlitsins og Gunnars Andersen um stöðu hans í embættinu og frest til andmæla. Efnahags-og viðskiptaráðherra segist hafa áhyggjur af þessarri þróun.

„Það er ekki gott að þetta standi lengi svona en þetta er alfarið verkefni stjórnarinnar og hún ber á þessu ábyrgð og ráðuneytið er á hliðarlínunni og fylgist með framvindunni," sagði Steingrímur.

Skaðar þetta ekki trúverðugleika embættisins út á við?

„Það er auðvitað aldrei gott þegar deilur eru um mikilvæga starfsemi af þessu tagi þannig það er mikilvægt að þessarri óvissu verði eytt og það komist botn í málið," svarði Steingrímur og bætti við:

„Það er ekki gott að þetta standi lengi svona en þetta er alfarið verkefni stjórnarinnar og hún ber á þessu ábyrgð og ráðuneytið er á hliðarlínunni og fylgist með framvindunni."

Aðspurður hvort að þetta mál skaði ekki trúverðugleika embættisins segir hann það aldrei gott að deilur standi um mikilvæga starfsemi af þessu tagi.

„þannig það er mikilvægt að þessarri óvissu verði eytt og það komist botn í málið."

Þá segir Steingrímur að verið sé að vinna að greiningu á áhrifum gengislánadóms Hæstaréttar og eftir helgi verði kynnt mat á dómnum og hvaða næstu skref koma til greina. Hann tekur ekki undir þá gagnrýni sem fram hefur komið að eftirlitsstofnanir hafi verið óundirbúnar fyrir dóminn.

„Þegar beðið er dóms þá getur þú aldrei fyrirfram undirbúið þig undir hann, það fer eftir hver dómurinn verður og hversu skýr hann er og hversu afdráttarlaust fordæmisgildi hann hefur. Það er eiginlega verið að biðja um hið ómögulega að menn séu algjörlega tilbúnir að svara því samstundis hvað nákvæmlega dómur þýðir, það er svo háð því hvernig hann er," segir Steingrímur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×