Ásdís: Draumurinn orðinn að veruleika Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 7. ágúst 2012 11:49 Ásdís fagnar kastinu sínu í morgun. Mynd/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir átti erfitt með að lýsa ánægju sinni með árangurinn sinn í undankeppni spjótkasts kvenna á Ólympíuleikunum í morgun. Ásdís tryggði sér sæti í úrslitum með því að kasta 62,77 m en lágmarkið til að komast í úrslit var 62 metrar. Ásdís hafnaði í áttunda sæti í undankeppninni en tólf efstu komust áfram. „Ég sá bara að þetta var yfir línuna. Ég sá að þetta var yfir 62 metrum. Það var það eina sem skipti máli," sagði Ásdís við Vísi eftir kastið sitt. Þetta var hennar fyrsta tilraun í keppninni og þurfti hún því ekki að taka fleiri köst. Nú bíða úrslitin hennar en þau fara fram á fimmtudagskvöldið. „Draumurinn er orðinn að veruleika. Ég komst í úrslit á Ólympíuleikum en ég er hvergi nærri södd. Ég er ekki búin. Nú þarf ég að ná mér niður á jörðina, hitta fjölskylduna og njóta tímans fram að úrslitunum." Hún segir að árangurinn komi sér ekki á óvart. „Ég átti alveg eins von á því að fara áfram. Ef ég hefði ekki átt von á því hefði ég ekki haft trú á mér. Ég hafði fulla trú á mér og þess vegna náði ég þessu kasti." Hún ákvað að nálgast fyrstu tilraun sína af yfirvegun. „Ég ákvað að vera afslöppuð í fyrsta kastinu og sjá hvað það myndi gefa mér. Þannig kasta ég lengst og það var einmitt það sem ég gerði þegar ég kastaði yfir 60 metrana á MÍ heima." „Ég veit ekki hvað ég get sagt meira - þetta var frábært."
Tengdar fréttir Ásdís áfram á glæsilegu Íslandsmeti Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hefur tryggt sér sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna með glæsilegu Íslandsmeti, 62,77 m. Bætti hún metið sitt um rúman metra. 7. ágúst 2012 09:59 Mest lesið Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Íslenski boltinn „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Íslenski boltinn Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Fleiri fréttir Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Eva Margrét sjöunda á EM Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården Fotios spilar 42 ára með Fjölni „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ „Við erum bara búin að fara í eina átt og það er upp“ „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Einar tekur við Víkingum Pogba og Fati mættir til Mónakó Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Mikael orðinn leikmaður Djurgården Alexander Máni seldur til Midtjylland Sjá meira
Ásdís áfram á glæsilegu Íslandsmeti Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hefur tryggt sér sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna með glæsilegu Íslandsmeti, 62,77 m. Bætti hún metið sitt um rúman metra. 7. ágúst 2012 09:59