Gaf allt sem ég átti í síðustu metrana Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 13. ágúst 2012 07:00 Kári Steinn Karlsson kemur hér í mark í maraþoninu í gær fyrstur Íslendinga á Ólympíuleikum. Mynd/Valli
Kári Steinn Karlsson sá til þess að Ólympíuleikarnir enduðu á jákvæðum nótum fyrir íslenska keppnisliðið en hann varð í 42. sæti í maraþonhlaupi karla sem fór fram í hjarta Lundúna í gær. Hann hljóp á 2.18:47 klst. sem er um einni og hálfri mínútu frá Íslandsmeti hans. Engu að síður er árangurinn sérlega góður því brautin var hæg og margir hlauparar sem áttu betri tíma en Kári Steinn komu á eftir honum í mark eða féllu einfaldlega úr leik. „Þetta snerist frekar um að taka fram úr heldur en að keppa við tímann," sagði hann við Fréttablaðið eftir hlaupið í gær. „Á stórmótum eins og Ólympíuleikum skiptir tíminn engu máli – það eina sem fólk vill vita er í hvaða sæti maður lenti." 98 af keppendunum 105 höfðu hlaupið hraðar en Kári Steinn átti best á sínum ferli en hann var að þreyta aðeins sitt þriðja maraþon frá upphafi í gær. Árangurinn er í því ljósi sérlega góður. Þungt stórborgarloftKári Steinn segir að aðstæður hefðu verið nokkuð erfiðar – en þó ekki alslæmar. „Það hefði getað verið 30 stiga hiti og sól allan tímann," sagði hann en sólin skein þó lengst af í keppninni þó svo að hitastigið hafi ekki farið yfir 25 gráður. „Það var því nokkuð þungt loft hér í miðri stórborginni og maður fann fyrir því. Ég svitnaði mikið og passaði mig vel upp á að drekka mikið á leiðinni. Það borgaði sig því menn hrundu niður eins og dauðar flugur síðustu kílómetrana, væntanlega vegna vökvaskorts." Kári Steinn vann sig úr 94. sæti eftir fyrstu fimm kílómetrana og upp í 42. sæti. Hann vann sig upp um sæti hvert skipti sem millitími var tekinn, alveg fram á síðustu metrana. „Mér finnst ég hafa gefið allt í þetta. Maður nær aldrei 100 prósent úr sér og mikil kúnst að halda einbeitingu allan tímann. Vissulega komu kaflar þar sem ég hefði getað gert betur en ég tók samt vel á því og kláraði mig svo alveg á síðustu metrunum." Heyrði reglulega í ÍslendingumÓtrúlegur fjöldi áhorfenda kom sér fyrir við hlaupaleiðina sem lá frá Buckinghamhöll í vestri og Lundúnaturni í austri. „Þetta var mjög flott leið og margar flottar byggingar á leiðinni. Stundum leið manni eins og bíl í Formúlu 1 eftir að hafa farið í gegnum allar þessar beygjur. En það gerði þetta bara enn skemmtilegra," sagði hann. „Það var samt hálfgert sjokk að fara af stað og fá þennan mannfjölda til að taka á móti manni. Maður sá að þetta voru ekki bara 2-3 raðir af áhorfendum heldur algjört mannhaf. Þetta var eins og í skrúðgöngu og lætin voru þvílík," segir hann. „Það var erfitt að halda ró sinni í upphafi og lá við að það væri þægilegra að hlaupa þá spotta þar sem áhorfendur máttu ekki vera. En þegar þreytan tók yfir hætti maður að taka eftir þessu." Hann segist þó hafa heyrt kallað á sig með reglulegu millibili. „Ég heyrði alltaf reglulega í Íslendingum og var mjög gott að finna fyrir stuðningnum." Á nóg eftirHann segist vera sáttur við niðurstöðuna og 42. sætið. Það gefi góð fyrirheit fyrir framhaldið. „Þetta voru mínir fyrstu Ólympíuleikar og innan við ár frá því ég hljóp maraþon í fyrsta skipti. Ég á því nóg eftir og stefni enn hærra á næstu mótum og næstu Ólympíuleikum."
Mest lesið Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Fótbolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Sport Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Sport Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvö rauð spjöld er Inter komst áfram Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Næstum því allt gekk upp hjá íslenska liðinu Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Lallana leggur skóna á hilluna Ronaldo að semja á ný við Al-Nassr Sjáðu Irmu bæta eigið Íslandsmet í þrístökki Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu Landsliðshóparnir valdir fyrir Evrópumótin í golfi Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Sjá meira