Stefán: Veit að Ásdís getur kastað mun lengra Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 9. ágúst 2012 08:00 markmiðinu náð Ásdís hljóp í fang þjálfara síns eftir að hún tryggði sér sæti í úrslitunum.fréttablaðið/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir verður í eldlínunni á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld þegar hún keppir í úrslitum spjótkasts kvenna. Ásdís tryggði sér sæti í úrslitum með glæsibrag en hún þurfti bara eina tilraun til að komast áfram og setti um leið nýtt Íslandsmet – 62,77 m. Stefán Jóhannsson, þjálfari hennar, sagði við Fréttablaðið í gær að Ásdís hefði verið fljót að ná sér aftur niður og að hún væri tilbúin fyrir keppni kvöldsins. „Það er auðvitað nauðsynlegt að núllstilla sig og henni hefur gengið mjög vel að ná einbeitingu á nýjan leik," sagði Stefán en þau tóku létta æfingu í ólympíuþorpinu í gær. Stefán segist hafa verið þess fullviss að Ásdís næði að kasta jafn vel og hún gerði. „Eins skrýtið og það kann að hljóma þá var ég handviss um það. Undirbúningurinn var mjög góður og svo var upphitunin hjá henni róleg og góð. Við vorum búin að leggja línurnar og það kom allt fram í kastinu." Ásdís sagðist sjálf hafa verið róleg og yfirveguð í kastinu. Þess vegna segir Stefán að hún eigi meira inni. „Ég tel hana geta kastað mun lengra. Hún náði mjög góðri stjórn á tækninni í gær [fyrradag] vegna þess að hún var á hraða sem hún réði vel við. Ef hún leggur meiri kraft í atrennuna og hittir á réttu tæknina á hún mun lengra kast inni." Tólf komust í úrslitin og eftir fyrstu þrjú köstin verður fækkað um fjóra í hópnum. Átta efstu fá þá aðrar þrjár tilraunir og er það nú markmið Ásdísar að komast í þann hóp. „Við verðum bara að sjá til hvernig það gengur. Henni gekk vel í undankeppninni en það segir svo lítið um framhaldið, enda getur allt gerst í úrslitum Ólympíuleika." Úrslitin í spjótkastinu hefjast klukkan 20.00 í kvöld að íslenskum tíma en Ásdís er níunda í kaströðinni.
Mest lesið Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ Fótbolti Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Fótbolti Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Fótbolti Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Sport Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Vrkić í Hauka Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Sjá meira