Segir málið pólitískt og að vísa eigi því frá Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 29. febrúar 2012 11:00 saksóknari Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, sagði á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í janúar að ekkert hefði komið efnislega fram sem réttlætti afturköllun ákæru. Alþingi hefiði þó skýran rétt til þess. fréttablaðið/gva
Þingmenn stjórnarflokkanna og Hreyfingarinnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leggja til að tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, verði vísað frá. Valgerður H. Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, segir að þrátt fyrir að hægt sé að færa rök fyrir því að Alþingi megi taka tillöguna á dagskrá, þýði það alls ekki að Alþingi eigi að gera það. „Við teljum að þingið eigi ekki að fara inn í málið. Þá væri það að skipta sér af sakamáli og málið yrði í eðli sínu pólitískt. Þess vegna viljum við að því verði vísað frá.“ Varatillaga meirihlutans er að tillaga Bjarna verði felld. Birgir Ármannsson segir að þau Ólöf Nordal, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, muni standa saman að nefndaráliti. Hann segir út af fyrir sig ánægjuefni að meirihlutinn skuli hafa tekið málið úr nefndinni, um tíma hafi ekki verið útlit fyrir það. Það sé fagnaðarefni að málið komi aftur á dagskrá þingsins. Sjálfstæðismenn séu hins vegar ósammála efnislegri afstöðu meirihlutans. „Við teljum í fyrsta lagi að þingið hafi heimild til að afturkalla ákæruna og auk þess teljum við rök fyrir því að það sé gert, eins og upphaflega tillagan um afturköllun byggir á. Við vísum til þess að ákæruvaldið er í höndum þingsins og þingmenn þurfi þannig, hver fyrir sig, að taka afstöðu til þessa máls á málefnalegum forsendum.“ Birgir segir sjálfstæðismenn einfaldlega vilja láta reyna á hvort sú staða sé uppi að meirihluti þingsins sé annar nú en þegar ákæran var samþykkt í september 2010. Valgerður segir efnisatriði varðandi það hvort eigi að fella ákæruna niður felast í lögum um meðferð sakamála. „Þar eru skilyrði þess að vísa máli frá tíunduð. Ekkert af þeim á við í þessu máli.“ Hún segir að ef slík efnisatriði væru fyrir hendi væri það saksóknara að beina því til Alþingis að taka málið upp. Það hafi hann ekki gert, þvert á móti hafi hann sagt að engar forsendur séu fyrir slíku.
Mest lesið Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Kynna breytta Reykjavíkurleið Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Lögreglan leitar manns Innlent Fleiri fréttir Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira