Innlent

Fátækum börnum fjölgar til muna

Ungur drengur í borginni Rawalpindi í Pakistan leikur sér við hundinn sinn á meðan vinur hans burðast með poka. Um 62% íbúa Pakistans búa í þéttbýli, þar af stór hluti við sárafátækt. Nordicphotos/AFP
Ungur drengur í borginni Rawalpindi í Pakistan leikur sér við hundinn sinn á meðan vinur hans burðast með poka. Um 62% íbúa Pakistans búa í þéttbýli, þar af stór hluti við sárafátækt. Nordicphotos/AFP
Hundruð milljóna barna í borgum um víða veröld hafa ekki aðgang að hreinu vatni, heilsugæslu, salernum eða annarri grunnþjónustu. Allra fátækustu börnin búa oft á stórhættulegum svæðum, við skelfilegar aðstæður á sorphaugum eða við hlið lestarteina. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem kemur út í dag.

Í skýrslunni er sjónum beint að börnum sem búa í borgum en innan fárra ára mun meirihluti barna í heiminum alast upp í þéttbýli. „Þegar við hugsum um fátækt er myndin sem kemur upp í hugann oftar en ekki af barni í litlu þorpi úti á landi,“ segir Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF. Staðreyndin er hins vegar sú að þegar býr yfir einn milljarður barna í stórborgum og æ fleiri þeirra búa í fátækrahverfum borganna. Í raun býr þriðji hver jarðarbúi sem býr í þéttbýli í fátækrahverfi.

Þótt börnunum bjóðist margvísleg tækifæri í borgunum búa þau líka við hrikalegan ójöfnuð. Mörg þeirra þurfa að vinna erfiðisvinnu og fá aldrei tækifæri til að ganga í skóla. Leiksvæði eru oft engin.

Í fátækrahverfunum er aðgangur að hreinu vatni og salernum lítill sem enginn. Þar sem hreinlæti er ábótavant breiðast sjúkdómar auðveldar út en ella í yfirfullum hverfunum.

Í skýrslunni sem kemur út í dag leggur UNICEF áherslu á að þarfir þeirra barna sem verst standa að vígi verði settar í forgang og hugsað sé sérstaklega um fátækrahverfin. Samtökin hvetja yfirvöld um víða veröld til að bæta aðgengi barnanna að nauðsynlegri grunnþjónustu og láta þarfir þeirra vera miðlægar í öllu borgarskipulagi.- kh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×