Prófessor stefnir alþingismanni 28. febrúar 2012 07:00 Ragnar Árnason
Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, hefur stefnt Þór Saari, þingmanni Hreyfingarinnar, fyrir dóm vegna meiðyrða. Ragnar krefur Þór um hálfa milljón króna í miskabætur. Tilefnið er ummæli sem Þór lét falla í samtali við DV þess efnis að Ragnar hefði þegið greiðslur frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna í áratugi. „Ég missti það út úr mér á harðahlaupum í samtali við blaðamann DV að hann væri búinn að vera á launum hjá LÍÚ í langan tíma. Svo hafði Ragnar nú samband við mig símleiðis og útskýrði fyrir mér að þetta væri rangt og bað mig að leiðrétta þetta,“ segir Þór. Það hafi verið gert en allt hafi komið fyrir ekki. Þór er ósáttur við að Ragnar skuli grípa til þessa úrræðis og telur það setja tjáningarfrelsi hans skorður. „Þetta er búið að kosta mig 250 þúsund nú þegar og mun örugglega kosta mig milljón þegar upp er staðið. Út af einhverju svona algjöru kjaftæði.“ Ragnar vildi ekki tjá sig um málið en vísaði á lögmann sinn, Huldu Árnadóttur. Hún segir að leiðréttingin í DV hafi ekki verið fullnægjandi. „Ragnar fór þess á leit við hann að hann bæðist opinberlega afsökunar og drægi ummælin til baka en hann var ekki fús til þess og þar af leiðandi var Ragnar nauðbeygður til að höfða þetta mál til að fá ummælin dæmd dauð og ómerk,“ segir Hulda. - sh
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira