Innlent

Ninja fremst meðal hunda

Ninja var sigursæl um helgina. fréttablaðið/stefán
Ninja var sigursæl um helgina. fréttablaðið/stefán
Ninja, sem er af tegundinni Siberian Husky, var valin besti hundur alþjóðlegrar hundasýningar Hundaræktarfélags Íslands sem haldin var um helgina á nýju sýningarsvæði að Klettagörðum.

Alls voru sýndir 696 hreinræktaðir hundar af 83 hundategundum. Um dómgæslu sáu sex dómarar frá sex löndum, en megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði og leiðbeina ræktendum í starfi sínu. - kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×