Myndaði Eiffel-turninn í polli 10. apríl 2012 14:00 Ljósmynd af Eiffel-turninum eftir Oscar Bjarnason prýðir nýja ljósmyndabók.
Grafíski hönnuðurinn og áhugaljósmyndarinn Oscar Bjarnason á ljósmynd í bókinni 200 Best Ad Photographers sem hið virta þýska tímarit Lürzer's Archive gefur út á tveggja ára fresti. „Það kom mér mest á óvart að fá boð um að vera með í bókinni," segir Oscar. „Fyrst ætlaði ég að sleppa því en svo ákvað ég að prófa og sjá hvað myndi gerast." Hann sér ekki eftir því enda komust tvær myndir eftir Oscar í gegn hjá dómnefndinni af rúmlega tíu þúsund sem voru sendar inn af 860 ljósmyndurum frá 56 löndum. Oscar ákvað að taka aðra þeirra út þar sem honum fannst hún ekki nógu lýsandi fyrir sig. Hin myndin, sem var tekin af Eiffel-turninum í París fyrir tveimur árum, er í bókinni ásamt um 500 öðrum myndum. „Við vorum að labba þarna, ég og unnustan, niður götuna og ég sá fínan poll þarna og smellti," segir hann um myndina. Oscar er einnig frímerkjahönnuður hjá Íslandspósti. Fyrirtækið vantaði myndir fyrir ferðamannafrímerki og voru myndir sem Oscar tók í Landmannalaugum notaðar á þau. Aðspurður segir hann ljósmyndun vera fína tilbreytingu frá starfi sínu sem grafískur hönnuður en á þeim vettvangi hefur hann unnið til ýmissa verðlauna.Oscar Bjarnason.mynd/christopher lund„Þetta er áhugamál sem byrjaði fyrir einhverjum þremur árum síðan og er alveg stórskemmtilegt. Maður kemst út úr húsi og það er ekki bara setið og horft á skjáinn allan daginn." Fleiri myndir eftir Oscar má finna á slóðinni Oscarbjarna.photoshelter.com/oscarbjarna. -fb
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira