Lögreglumenn gripu hávær brúðhjón í bólinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2012 18:02 Það borgar sig að fara varlega þótt mikið liggi við.
Íbúar kvörtuðu til lögreglu þegar þeir voru orðnir þreyttir á hávaða og látum sem bárust frá íbúð í húsi nokkru á höfuðborgarsvæðinu eina helgarnótt fyrir skömmu. Lögreglan hélt á staðinn og átti allt eins von á því að fjörugt og fjölmennt partí væri þar í gangi. Samkvæmt frásögn lögreglunnar reyndist það ekki alveg raunin því innandyra voru karl og kona. Um var að ræða brúðhjón en ekki var talið að hávaðann og lætin mætti rekja til ósættis þeirra enda hveitibrauðsdagarnir nýhafnir. Nei, hljóðin í blokkinni reyndust stafa af öðrum athöfnum fólksins. Lögreglan gefur ekki út smáatriði málsins en segir þó að hvílubrögð brúðhjónanna hafi ekki verið refsiverð. Hávaðinn og lætin sem þeim fylgdu kunni þó að hafa verið brot á lögreglusamþykkt en engu að síður hafi verið ákveðið að aðhafast ekkert frekar í málinu. Engar frekari kvartanir bárust lögreglu eftir að hún yfirgaf vettvang en hætt er við að brúðhjónin gleymdi seint þessari heimsókn lögreglumannanna.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira