"Þetta er valdníðsla og einelti" Boði Logason skrifar 28. janúar 2012 10:19 Margeir Margeirsson, er eigandi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó á Laugavegi. Hann segir að verið sé að brjóta lög á sér. Starfsemi hans sé ekki ólögleg. Samsett mynd/Vísir.is „
Ég er búinn að borga um 10 milljónir í lögfræðikostnað á þremur árum til þess að halda uppi mannréttindum - og ég er ekki hættur," segir Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó á Laugavegi. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ætli ekki að endurnýja rekstrarleyfi staðanna eftir að borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna. Margeir segir í samtali við Vísi í morgun að lögreglustjóri hafi unnið að því í mörg ár að koma honum af Laugaveginum. „Ég er orðinn svo leiður á því að það sé alltaf verið að segja að það sé verið að fara loka hjá mér - það er ekkert verið að fara loka hjá mér. Stefán [Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, innsk.blm.] ætlaði að taka af mér leyfið og vann að því í mörg ár með allskonar klækjabrögðum," segir Margeir. Hann segir að Innanríkisráðuneytið hafi sent Stefáni skeyti í vikunni, þar sem því var beint til hans að gefa út bráðabirgðaleyfi til þriggja mánaða á meðan málið væri til umfjöllunar. „Þegar að búið er að skoða það mál, þá kem ég til með að fá leyfi ef það eru einhver lög í landinu. Eins og borgarfulltrúar og lögreglustjóri halda, þá eru bara tvö lög í landinu og það eru „af því bara-reglan" og „mér finnst það-reglan". En það eru lög í landinu, þetta er lögleg starfsemi hjá mér. Þetta eru staðir sem eru með hvað elstu kennitölu í veitingabransanum, staðir sem hafa hvað mest traust af öllum veitingastöðum í Reykjavík." Hann segist ósáttur og athugar nú hvort hann geti leitað réttar síns. „Þetta er valdníðsla og einelti. Þetta eru stöðug lögbrot á mér bæði frá borgarfulltrúum og lögreglu, það verða kannaðir allir möguleikar, hvort að það verði ekki hægt að lögsækja þetta fólk því prívat og persónulega. Því ég tel að þau séu að ráðast gegn einstaklingi sem hefur ekkert gert af sér," segir hann. „Þetta aumingja fólk sem er að djöflast á mér heldur það, að ef einhver á Laugaveginum gerir eitthvað af sér, þá sé það eitthvað fólk frá mér.“ Og hann gagnrýnir þá borgarfulltrúa sem hann hefur hitt. „Ég hitti borgarfulltrúana Júlíus Vífil Ingvarsson, Óttar Proppé og sjálfan borgarstjórann og sýndi þeim þessi fáránlegheit. Þeir jánkuðu þessu allir og sáu hversu fáránlegt þetta var en samt greiddu þér atkvæði um að ég hefði brotið af mér," segir hann hissa. Og þrátt fyrir ákvörðun borgarráðs og lögreglustjóra um að endurnýja ekki leyfin segist Margeir ekki ætla að gefast upp. „Núna er ég að gera klárt fyrir daginn, það er langt þangað til ég loka."
Tengdar fréttir Monte Carlo og Mónakó lokað Lögregustjóri höfuðborgarsvæðisins hafnar því að endurnýja rekstrarleyfi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó sem báðir eru við Laugaveg í Reykjavík. Borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna og vísar lögreglustjórinn til þess að hann geti ekki gengið gegn neikvæðri niðurstöðu borgarinnar sem umsagnaraðila. 28. janúar 2012 09:15 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira
Monte Carlo og Mónakó lokað Lögregustjóri höfuðborgarsvæðisins hafnar því að endurnýja rekstrarleyfi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó sem báðir eru við Laugaveg í Reykjavík. Borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna og vísar lögreglustjórinn til þess að hann geti ekki gengið gegn neikvæðri niðurstöðu borgarinnar sem umsagnaraðila. 28. janúar 2012 09:15