Veitingahús með fornmannamat í torfkofa 1. mars 2012 06:00 Menningarráð segir að sækja þurfi um lóð hjá skipulagssviði og leyfi frá lögreglunni vilji menn opna veitingastað í Hljómskálagarðinum. Fréttablaðið/Anton „
Mig langar að byggja fornaldarbæ í Hljómskálagarðinum eða miðbænum sem býður ferðamönnum að kynnast sögu okkar, mat og menningu,“ segir í einni tillögunni sem sett hefur verið fram á vefnum Betri Reykjavík sem borgin hefur nú rekið um nokkurt skeið. „Ferðamenn sem koma til Íslands vilja kynnast sögu okkar, menningu og jafnvel bragða mat þann sem var á borðum fyrir 1000 árum,“ segir í tillögunni. „Staðurinn yrði úr torfi og grjóti og með gömlum húsgögnum. Kokkar og þjónustufólk verði í fötum þess tíma. Maturinn væri reyktur, lagður í súr, þurrkaður og svo framvegis. Gestir fengju kyrtil og sauðskinnsskó við komuna í skálann.“ Tillagan um veitingahús úr forneskju var lögð fram í menningar- og ferðamálaráði á mánudag. Ráðið sagði gildandi deiliskipulag fyrir Hljómskálagarð ekki gera ráð fyrir uppbyggingu af þessum toga þó að oft hafi verið ræddar hugmyndir um kaffihús sem myndi bæta þjónustu við gesti garðsins. Hugmyndin var þó ekki alfarið blásin út af borðinu. „Aðili sem hefur áhuga á að reisa og reka matsölustað getur sótt um lóð hjá Skipulags- og byggingarsviði og síðar rekstrarleyfi fyrir veitingastað hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði menningarráðið. - gar
Mest lesið „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent „Þetta er innrás“ Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Fleiri fréttir Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Sjá meira