Innlent

Svindl ef vörur eru of léttar - Neytendastofa skoðar málið

Jóhannes bendir á að ef það er verið að svindla á neytendum, þá eru það ekki verslanirnar því það eru framleiðendur sem pakka inn og vigta matvælin. Því sé það á þeirra ábyrgð.
Jóhannes bendir á að ef það er verið að svindla á neytendum, þá eru það ekki verslanirnar því það eru framleiðendur sem pakka inn og vigta matvælin. Því sé það á þeirra ábyrgð.
„Miðað við þær upplýsingar sem þarna koma fram þá er verið að svindla á neytendum," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, um vigtun Friðriks Höskuldssonar á matvælum, sem hann birti í þar til gerðri töflu á Facebook. Þar kom fram að raunþyngd á öllum innlendum vörum reyndist minni en uppgefin þyngd á umbúðum varanna. Slíkt átti þó ekki við erlendar vörur sem stóðust alltaf merkingar, og stundum rúmlega það.

Samkvæmt vigtun og útreikningum Friðriks tapaði hann rúmlega fjórtán hundruð krónum á matarpokanum sem hann vigtaði.

Jóhannes hjá Neytendasamtökunum segir það kröfu samtakanna að framleiðendur matvæla, sem merkja umbúðirnar, hafi þetta í lagi. Það er Neytendastofa sem sér um eftirlit með vigtun matvæla og hefur nokkrum sinnum vigtað matvæli og komist að raun um að þyngdir stæðust ekki.

Jóhannes bendir á að ef það er verið að svindla á neytendum, þá eru það ekki verslanirnar því það eru framleiðendur sem pakka inn og vigta matvælin. Því sé það á þeirra ábyrgð.

„Það þarf að gera úttekt á þessu," segir Jóhannes svo.

Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu verður farið í að vigta matvörur eftir helgi. Þar fengust þau svör að sumar niðurstöðurnar sem máttu finna í töflu Friðriks gætu verið innan skekkjumarka. Í sumum tilvikum var allt of mikill munur samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu.


Tengdar fréttir

Vörusvik í innlendri matvöru

Raunþyngd á öllum innlendum vörum sem Friðrik Höskuldsson á Alftanesi keypti nýverið, reyndist minni en uppgefin þyngd á umbúðum varanna, að því er Friðrik greinir frá á Facebook-síðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×