Innlent

Segir annmarka á hugmyndum Helga Hjörvar

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að annmarkar séu á hugmynd Helga Hjörvars um fjármögnun á leiðréttingum verðtryggðra lána. Hún vill ná sáttum í skuldamálum heimilanna með fulltrúum allra flokka.

Helgi Hjörvar, viðraði um daginn fyrstur stjórnarþingmanna, hugmyndir um leiðréttingar á verðtryggðum húsnæðislánum. Hann lagði til að leiðrétting yrði fjármögnuð með fyrirfram skattlagningu á séreignalífeyrissparnaði og þeim afslætti sem lífeyrissjóðirnir fengu við kaup á verðtryggðum íbúðabréfum. Forsvarsmenn Landssamtaka lífeyrissjóða hafa brugðist hart við - formaður þeirra segir í dag hugmyndina með því lakara sem hann hafi heyrt frá þingmanni - og bætir við að þetta sé svo barnaleg hugmynd. Og þetta sagði framkvæmdastjórinn í fréttum okkar í vikunni: hugmyndin er alveg fráleit að mínu viti.

Forsætisráðherra hefur ekki tjáð sig um þessar hugmyndir - og var í tvígang spurð um afstöðu sína á alþingi í dag: „Þessa stundina er verið að reikna út þessar hugmyndir sem að hafa komið fram frá Hreyfingunni, það er verið að skoða ítarlega þessar leiðir," segir Jóhanna Sigurðardóttir. Með útreikningana á borðinu vill hún fulltrúa allra flokka að borðinu til að fara yfir leiðirnar og ná sátt í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×