Lífið

Járnmaðurinn í fríi með fjölskyldunni

MYNDIR / COVER MEDIA
Iron Man-stjarnan Robert Downey Jr. eyddi gæðastundum með eiginkonu sinni Susan og syni þeirra Exton í Miami í Flórída fyrir helgi.

Þessi litla fjölskylda náði að finna tíma til að njóta lífsins en Robert er í Miami til að taka upp nýjustu Iron Man-myndina, þá þriðju í röðinni.

Iron Man 3 kemur í kvikmyndahús í maí á næsta ári og eru aðdáendur Roberts að farast úr spenningi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.