Ian Thorpe: Ég íhugaði sjálfsmorð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2012 21:15 Ian Thorpe. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ian Thorpe er einn sigursælasti sundmaður allra tíma en í nýrri ævisögu sinni skrifar hann um þunglyndi, alkóhólisma og sjálfsmorðshugsanir á meðan hann var á hátindi ferils síns. Hinn 29 ára gamli Ian Thorpe er sigursælasti Ástrali á Ólympíuleikum með fimm gull og hann hefur einnig unnið 11 gull á heimsmeistaramótum þar af sex á HM í Fukuoka 2001. Hann var einnfremur valinn fjórum sinnum besti sundmaður heims. Thorpe er að gefa út bókina "This is me: The Autobiography" eða "Þetta er ég - sjálfsævisaga" og ástralskir fjölmiðlar hafa komist í heitustu sögurnar í bókinni. „Fjölskyldan mín veit ekki einu sinni um að ég hef mestan hluta lífs míns glímt við mikið þunglyndi. Þetta var orðið svo slæmt að ég var farinn að hugsa um staði og aðferðir ef ég ætlaði að taka mitt eigið líf," hefur Sunday Morning Herald eftir skrifum Thorpe í bókinni sinni. Ian Thorpe vann þrjú gull á Ólympíuleikunum í Sydney og var hetja í heimalandinu. Hann þurft að leita í leyni til læknis sem reddaði honum þunglyndislyfjum en fljótlega fór hann að sækja meira í brennivínið. „Ég notaði brennivínið til að hreinsa hugann af öllum þessum hryllilegum hugsunum. Þetta var ein leið til að stjórna hugsunum mínum og ég gerði þetta á bak við lokaðar dyr," sagði Thorpe sem tókst alltaf að fela drykkjuna fyrir þjálfurum og sálfræðingum. „Þetta gerðist margoft á árunum 2002 til 2004 eða meðan ég var að undirbúa mig fyrir leikana í Aþenu 2004. Ég var alltaf einn að drekka í skömm," sagði Thorpe. Hann segir að sem betur fer áttaði hann sig alltaf á því hversu fáránlegt það væri að taka sitt eigið líf áður en hann gekk of langt. Ian Thorpe bætti við tveimur gullum, einu silfri og einu bronsi á leikunum í Aþenu. Hann reyndi að koma aftur til baka í sumar eftir sex ára pásu en náði ekki að komast inn á Ólympíuleikana í London.
Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Íslenskt lið komið inn á heimsleikana í CrossFit „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Bráðaaðgerð var ekki á bingóspjaldinu mínu fyrir 2026“ „Sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Holland - Japan | Hefja leik í hörkuriðli „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Sjá meira