Innlent

Tuttugu björgunarsveitarmenn leituðu ferðalangs

BBI skrifar
Jökulsárlón
Jökulsárlón
Blásið var til leitar eftir að tilkynnt var um erlendan ferðamann sem orðið hafði viðskila við hópinn sinn við Jökulsárlón í dag. Maðurinn fannst stuttu eftir að leitin hófst. Tuttugu björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Hornafjarðar tóku þátt í leitinni auk 5 starfsmanna Jökulsárlóns.

Maðurinn varð viðskila við hóp sinn um klukkan sex. Björgunarsveit var kölluð út milli klukkan átta og níu, en þá hafði starfsfólk Jökulsárlóns leitað í um klukkutíma. Maðurinn var kominn í leitirnar fyrir klukkan níu. Hann er heill heilsu.

Friðrik Jóns Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, telur ólíklegt að maðurinn hafi upplifað sig týndan. „Það er náttúrlega sól og blíða og blankalogn. Hann bara fór og fékk sér labbitúr."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×