Langt í frá augljóst að Ólafur nái kjöri 5. mars 2012 05:00 Gunnar Helgi Kristinsson „
Þetta kemur mér ekki mikið á óvart og hann hefði getað eytt óvissunni fyrir löngu,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að gefa áfram kost á sér til embætti forseta Íslands. Ólafur Ragnar sendi yfirlýsingu þess efnis frá sér í gær en áskildi sér hins vegar rétt til að hætta í embætti á miðju kjörtímabili þegar stöðugleiki hafi skapast í stjórnarfari og stjórnskipan landsins. Gunnar Helgi segir þetta afar óvenjulegt. „Þetta er það óvenjulegt að ég á erfitt með að greina það en þetta virðist helst tengjast pólitískum markmiðum á borð við stjórnarskrána og fullveldið. Ólafur gefur það til kynna að þetta sé óvenjulegt framboð með pólitískt markmið.“ Gunnar Helgi segir erfitt að segja til um hvort margir eigi eftir að bjóða sig fram á móti Ólafi Ragnari þar sem hann hafi með þessu boðað pólitískari tíma á Bessastöðum. „Hinn hefðbundni forsetaframbjóðandi færi ekki fram gegn sitjandi forseta. Flestir forsetaframbjóðendur fara í framboð til þjóðhöfðingja og maður veit ekki hversu margir eru til í pólitíska baráttu á borð við þessa,“ segir Gunnar Helgi en hann telur hins vegar að það sé ekki augljóst að Ólafur Ragnar nái kjöri. „Ég mundi segja að hann hafi tekið mikla áhættu og að það sé langt frá því augljóst að hann nái kjöri. Það fer hins vegar allt eftir hvað gerist á næstu vikum, hvernig mótframbjóðendur hann fær og hvernig hlutirnir halda áfram að þróast.“- áp
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira