Sport

Helgi langt frá sínu besta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Helgi Sveinsson endaði í tíunda sæti af ellefu keppendum í keppni í langstökki á Ólympíumóti fatlaðra í London.

Þetta var fyrsta keppnisgrein Helga á mótinu en hann stökk lengst 4,25 m í dag og var rúmum metra frá sínu besta í greininni.

Helgi náði sínu lengsta stökki í fyrstu atrennu en stökk undir fjórum metrum í næstu tveimur. Aðeins átta efstu komust áfram í úrslit og því hefur Helgi lokið keppni.

Helgi keppir einnig í spjótkasti og 100 m hlaupi á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×