Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Aron Guðmundsson skrifar 16. júní 2026 07:03 Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastið og framundan er fyrsta risamót hans Vísir/Getty Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni. „
Þetta er spennandi vika fyrir okkur báða hvað það varðar að fá í fyrsta sinn raunverulega reynslu af svona risamóti saman,“ Mark Haastrup, umboðsmaður Gunnlaugs Árna við Vísi. Á fimmtudaginn kemur hefur hinn tvítugi Gunnlaugur Árni leik á U.S. Open, einu af fjórum risamótum ársins í golfheiminum. Þar með verður hann fyrsti íslenski kylfingurinn til þessa til að leika á risamótinu. „Ég fæ að sjá hvernig Gunnlaugur æfir, hvernig hann ber sig að við þessar nýju aðstæður, hvernig teymið hans starfar, samskiptin við fjölskylduna og allt sem þessu fylgir. Gunnlaugur Árni fær þá líka að sjá hvernig ég starfa þegar ég er á atvinnumanna móti. Ég verð til staðar fyrir hann og reyni mitt besta til að gera þessa stóru og nýju reynslu fyrir hann aðeins auðveldari og afslappaðri.“ Afslappaður en samt spenntur Gunnlaugur Árni hefur verið að gera afar gott mót frá því að hann byrjaði að reyna fyrir sér í bandaríska háskólagolfinu með liði LSU. Hann er á meðal bestu áhugakylfinga í heimi og verður gaman að sjá hvernig honum gengur á meðal allra bestu kylfinga í heimi. Mark segir mikla vinnu fyrir mótið nú fara fram á bakvið tjöldin enda sé margt sem þarf að skipuleggja og sjá til þess að sé í lagi þegar að risamót er á döfinni. „Það fylgir þessu fjölmiðlaathygli, viðskiptaleg athygli og það fer mikið af skipulagsvinnu fram á bak við tjöldin. Þetta er allt nýtt fyrir Gunnlaug Árna og það er virkilega spennandi fyrir mig að fá að vera hluti af einhverju svona sérstöku fyrir hann í fyrsta sinn. Svona hlutir verða oft að venju, sama hversu sérstakir þeir eru. Þess vegna er svo gaman að sjá Gunnlaug Árna upplifa þetta af fullu hjarta í fyrsta sinn, njóta þess, brosa, vera afslappaðan en jafnframt svolítið spenntan. Hann mun muna eftir þessari viku mjög lengi.“ Njóta og telja höggin eftir hverja umferð Gunnlaugur Árni vilji að sjálfsögðu standa sig vel á U.S. Open en verði að njóta augnabliksins. „Núna snýst þetta um að taka þetta allt inn, njóta augnabliksins og undirbúa sig vel. Svo sjáum við bara hvernig mótið þróast. Enginn getur þvingað fram góðan árangur, sama hversu mikið hann vill það. Það eina sem skiptir máli er að undirbúa sig vel, reyna að keppa af fullum krafti og síðan telja höggin eftir hverja umferð og sjá hvar maður endar. Og læra af reynslunni.“ Athyglin á Gunnlaugi Árna nú sé umtalsvert meiri en áður. „Já, það er klárlega meiri athygli núna, bæði frá fjölmiðlum og á viðskiptalegum vettvangi. Það er einfaldlega hluti af þessu öllu saman og hluti af því að vera einstaklega hæfileikaríkur kylfingur. Mér sýnist Árni taka þessu öllu mjög vel og vera með báða fætur á jörðinni.“ Gunnlaugur Árni hefur vakið athygli fyrir afar þroskaða nálgun þegar kemur að golfíþróttinni og stóíska ró. Mark segir það mikla ánægju að starfa með Íslendingnum unga. „Hann er auðvitað gríðarlega hæfileikaríkur og einn besti áhugakylfingur heims, en hann er líka einstaklega geðþekkur og góður drengur. Það er ánægjulegt að vera hluti af teyminu hans. Ég hlakka mjög til þessarar viku og til að sjá hann læra af reynslunni og taka þann lærdóm með sér inn í framtíðina.“ Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Open á fimmtudaginn næstkomandi. Mótið verður sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Opna bandaríska Golf Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira