Innstæðutryggingar alltaf út í krónum 3. mars 2012 07:00 Már Guðmundsson
Már Guðmundsson seðlabankastjóri kallar eftir því að verulegar takmarkanir verði settar við lánveitingum í erlendri mynt til heimila. Þá telur hann æskilegt að festa í lög að innstæðutryggingar verði aðeins greiddar út í íslenskum krónum. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Más á ráðstefnu sem Landsbankinn stóð fyrir á fimmtudag undir yfirskriftinni „Staðan á Íslandi – fjármálastöðugleiki“. Gerði Már gjaldeyrishöftin að umtalsefni og sagði það mikilvægt til lengri tíma litið að afnema höftin sem séu skaðleg. Már bætti þó við að áður en til almennrar losunar kæmi þyrfti að huga að nýjum ramma utan um peningastefnuna sem og almenna efnahagsstjórn á Íslandi. Þá væri æskilegt að lögfesta ákveðnar þjóðhagsvarúðarreglur með það fyrir augum að auka stöðugleika í hagkerfinu. Talaði Már meðal annars um að minnka þyrfti áhættu þjóðarbúsins vegna fjármagnshreyfinga og bankastarfsemi yfir landamæri. Taldi hann því næst upp sex varúðarreglur sem skynsamlegt gæti verið að lögfesta á Íslandi þar á meðal tvær reglur er varða starfsemi innlendra banka erlendis. Annars vegar að takmarkanir yrðu settar á slíka starfsemi sem gæti kallað á ábyrgð íslenskra skattborgara og hins vegar að innstæðutryggingar yrðu aðeins greiddar út í krónum. Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er sammála Má um að þessi atriði þurfi að skoða vandlega. Varðandi innstæðutryggingar segist hann taka undir með Má að æskilegt sé að lögfesta að innstæðutryggingar verði aðeins greiddar út í krónum en bendir á að Íslendingar eru þó í þessum málaflokki bundnir af evrópsku lagaverki. Þá segir hann að fara þurfi vel yfir hvort ástæða sé til að takmarka lánveitingar í erlendri mynt. Nauðsynlegt sé að læra af reynslu síðustu ára og vonandi sé hægt að tryggja að fjármálakerfið verði heilbrigðara í framtíðinni með löggjöf og í framkvæmd. Loks segir hann enn mikla vinnu bíða á þessu sviði. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira