Innlent

Markaðsaðilar svartsýnir á verðbólgu

Markaðsaðilar virðast hafa litla trú á getu Seðlabankans til að ná verðbólgumarkmiði sínu.
Fréttablaðið/Pjetur
Markaðsaðilar virðast hafa litla trú á getu Seðlabankans til að ná verðbólgumarkmiði sínu. Fréttablaðið/Pjetur
Markaðsaðilar á skuldabréfamarkaði búast ekki við því að Seðlabankanum takist að ná verðbólgumarkmiði sínu á næstu tveimur árum. Þá gera þeir ráð fyrir 4,3% meðalverðbólgu næstu 10 ár sem er talsvert umfram markmiðið um 2,5%. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Seðlabankinn stóð fyrir á meðal markaðsaðila um væntingar þeirra til þróunar hagstærða næstu misseri.

Könnun sem þessi verður framvegis lögð fyrir markaðsaðila ársfjórðungslega en hún er að erlendri fyrirmynd. Leitað var til alls 27 markaðsaðila á skuldabréfmarkaði, nánar tiltekið banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og eignastýringarfyrirtækja.

Niðurstöður könnunarinnar voru þær að markaðsaðilar búast við því að verðbólga verði 5% eftir eitt ár og 4,7% eftir tvö ár. Verðbólga mældist 6,5% þegar könnunin var send út en samkvæmt verðbólguspá Seðlabankans verður verðbólgan komin niður í 3,6% í lok árs. Þá búast markaðsaðilar við 4,3% meðalverðbólgu næstu tíu árin.

Í takt við þessar væntingar um verðbólgu búast markaðsaðilar við því að stýrivextir Seðlabankans hækki um 0,75 prósentustig á þessu ári. Þá hækki bankinn vexti um 0,25 prósentustig til viðbótar á fyrsta fjórðungi næsta árs.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×