Sendiherra bannað að mæta á ráðstefnu Framsóknarflokksins 3. mars 2012 07:41
Utanríkisráðuneyti Kanada hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að Alan Bones sendiherra Kanada á Íslandi muni ekki mæta á ráðstefnu Framsóknarfélags Reykjavíkur í dag. Né muni hann ræða frekar um málefnið sem þar er til umfjöllunnar, það er möguleikana á að skipta krónunni út fyrir kanadadollarann. Fjallað er um málið á vefsíðu blaðsins Toronto Star. Þar segir að viðtal Alan Bones við fréttastofu í gærmorgun hafi valdið diplómatískri uppákomu í utanríkisráðuneytinu í Ottowa sem síðan hafi sent frá sér tilkynningu sem banni Bones að mæta á ráðstefnuna. Í viðtalinu kom m.a. fram að samkvæmt viðræðum Bones við ráðamenn í Seðlabanka Kanada væri bankinn jákvæður gagnvart áhuga Íslendinga á að taka upp dollarann og væri tilbúinn í formlegar viðræður um slíkt. Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir að ráðuneytið tjái sig ekki opinberlega um gjaldmiðilsmál í öðrum löndum. Haft er eftir Ian Trites talsmanni ráðuneytisins að þetta sé mál íslenskra stjórnvalda og íslensku þjóðarinnar. Toronto Star ræðir einnig við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Framsóknarflokksins um málið. Sigmundur bendir á að margt sé líkt með löndunum tveimur og að fjöldi fólks af íslenskum ættum búi í Kanada. Doug Porter, aðalhagfræðingur BMO Capital Markets, segir að kostnaður Kanadamanna við að leyfa Íslendingum að taka upp Kanadadollarnn sé minniháttar. Íbúafjöldi Íslands sé aðeins 1% af íbúafjölda Kanada. Portir segir að Kanadamenn eigi að líta á áhuga Íslendinga sem mikil meðmæli. „Ég veit að flestir telja Ísland vera glatað dæmi en landið er að byrja að snúa aðstæðum sér í hag," segir Porter.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Fleiri fréttir Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira