Kærir málsmeðferð til Mannréttindadómstóls Evrópu 3. mars 2012 12:15 Lögmenn Baldurs telja að með dómi Hæstaréttar frá 17. febrúar hafi í veigamiklum atriðum verið brotinn réttur á Baldri í skilningi ákvæða Mannréttindasáttmála Evrópu.
Baldur Guðlaugsson, sem dæmdur var í Hæstarétti í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik, hefur falið lögmönnum að kæra málsmeðferð í máli sínu til Mannréttindadómstóls Evrópu. Afar fá mál sem kærð eru til dómstólsins eru tekin þar fyrir en á árinu 2009 voru aðeins tæplega 7% þeirra kæra sem bárust dómstólnum taldar tækar til efnismeðferðar. Lögmenn Baldurs telja að með dómi Hæstaréttar frá 17. febrúar hafi í veigamiklum atriðum verið brotinn réttur á Baldri í skilningi ákvæða Mannréttindasáttmála Evrópu. Í fyrsta lagi telja þeir að brotið hafi verið á rétti Baldurs til að þola ekki endurtekna málsmeðferð vegna refsiverðrar háttsemi en sá réttur er varinn í 4. gr. 7. viðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu. Fjármálaeftirlitið rannsakaði mál Baldurs og tilkynnti honum í maí 2009 að rannsókn væri lokið en málið var svo endurupptekið stuttu síðar. Þá telja lögmenn Baldurs að réttur hans til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt 6. gr. Mannréttindasáttmálans hafi ekki verið virtur þar sem hann hafi verið sakfelldur fyrir annað en hann var ákærður fyrir. Baldur var ákærður fyrir að hafa verið annar innherji í skilningi laga en sakfelldur fyrir að hafa verið tímabundinn innherji. Þá telja lögmenn Baldurs að réttur hans til réttlátrar málsmeðferðar hafi ekki verið virtur þar sem Hæstiréttur hafi ekki tekið afstöðu til vegamikilla atriða í vörn hans. Þá telja þeir að sönnunarbyrði hafi reynd verið snúið við í málinu og Baldur þannig ekki notið þeirrar grundvallarréttinda að teljast saklaus uns sekt er sönnuð og að verulegur vafi leiki á því að mál hans hafi notið óvilhallrar meðferðar fyrir dómi. Í tilkynningu frá Lex xegir að kæra verði send Mannréttindadómstólnum á næstunni. Ekki er sjálfgefið að mál Baldurs verði tekið fyrir af Mannréttindadómstólnum en skilyrðin fyrir því að kæra teljist tæk til efnismeðferðar eru mörg og langfæst mál sem koma fyrir dómstólinn fá efnismeðferð. Þannig voru aðeins 2.395 efnisdómar kveðnir upp á árinu 2009 en 33.065 kærur voru taldar ótækar til efnismeðferðar. Samkvæmt þessu eru aðeins tæplega 7% þeirra kæra sem berast dómstólnum taldar tækar til efnismeðferðar.
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Erlent Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Erlent Starmer muni segja af sér í dag Erlent Fleiri fréttir Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“