Innlent

Ók á tæplega 200 kílómetra hraða

Karl um þrítugt var tekinn fyrir ofsaakstur á Miklubraut í Reykjavík á fimmta tímanum síðdegis í gær. Sá ók bifhjóli á 191 km hraða austur Miklubraut, á milli Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar, en þarna er 60 km hámarkshraði.

Maðurinn, sem hefur alloft áður gerst sekur um umferðarlagabrot, var sviptur ökuréttindum á staðnum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×