Innlent

Vill að íslensk stjórnvöld viðri áhyggjur af mannréttindabrotum

BBI skrifar
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hvetur íslensk stjórnvöld til að nota ráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna sem nú fer fram í Genf til að koma á framfæri áhyggjum af viðvarandi mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda í Tíbet

Í dag fer fram sérstakur samstöðudagur fyrir Tíbet og Birgitta minnir á mannréttindabrot og sífellt versnandi ástand þar í landi. Hún hvetur stjórnvöld um víða veröld til að þrýsta á kínversk stjórnvöld og láta þau ekki komast upp með mannréttindabrot í Tíbet.

Birgitta skorar á almenning og fjölmiðla að setja í forgrunn sextíu ára baráttu tíbetsku þjóðarinnar gegn mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda í landinu og minnir á að stöðugt versnandi ástand í landinu hefur leitt til 38 sjálfsíkveikja til og með 31. maí í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×