Innlent

Segir brot forstöðumanna á fjárlögum ólíðandi

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, segir að ítrekuð brot forstöðumanna á fjárlögum séu ólíðandi. Hann krefur fjármálaráðherra svara og spyr hvort að viðurlög við slíku athæfi séu til staðar.

„Í setu minni í fjárlaganefnd heyrði ég fulltrúa frá Ríkisendurskoðun og fleiri aðila lýsa því hvernig sumir forstöðumenn ríkisstofnana komast einfaldlega upp með það - árum saman - að fara fram úr fjárheimildum á meðan aðrir standa sína pligt."

Sigmundur segir þetta vera óeðlilegt og því hefur hann sent fjármálaráðherra fyrirspurn varðandi málið. Fyrirspurninni var dreift á Alþingi í dag.

„Ég er að athuga hvort að það sé einhver viðurlög við slíku athæfi. Ég lít á fjárlögin sem alvarlegan hlut og það á ekki að vera sjálfgefið að menn komist upp með að brjóta þau."

Sigmundur segir að það sé afar slæmt að þeir forstöðumenn sem hafa staðið sig vel þurfi að horfa á kollega sína sem virði ekki fjárlögin komast upp með það. Hann bendir á að á hinum almenna vinnumarkaði séu menn yfirleitt reknir þegar þeir standi sig ekki vel í starfi.

„Ítrekaður framúrakstur forstöðumanna með almannafé á ekki að vera liðinn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×