Fatlaðir fjölmenna til London | Annasamasti dagurinn á Heathrow Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. ágúst 2012 15:30 Keppendur frá Rússlandi við komuna á Heathrow í morgun. Nordicphotos/Getty
Ólympíumót fatlaðra verður sett í London næstkomandi miðvikudag. Reiknað er með yfir 2000 keppendum og starfsfólki á Heathrow-flugvöllinn í London í dag sem verður að öllum líkindum sá annasamasti á flugvellinum í aðdraganda leikanna. „Það var tekið vel á móti okkur hér á Heathrow og nóg af aðstoðarfólki," sagði Ástralinn Colin Harrison í samtali við Guardian við komuna til Englands. Harrison, sem er 51 árs og keppir í siglingum á mótinu, missti aðra hönd sína eftir baráttu við krabbamein þegar hann var 28 ára. Reiknað er með komu um 400 keppenda í hjólastólum á flugvöllinn í dag. Settar hafa verið upp sérstakar lyftur og önnur hjálpartæki keppendunum til aðstoðar. Einnig mæðir mikið á flugfélögunum að flytja stóra hópa íþróttafólksins til London. British Airways flytur keppendur frá 25 löndum, þar á meðal keppendur Breta sem dvalið hafa erlendis við æfingar. Ásamt keppendunum flytur flugfélagið um 300 hjólastóla auk annars íþróttabúnaðar. „Þetta hefur verið rosalega flókið verkefni sem við höfum undirbúið frá því í Peking 2008 þegar við flugum heim með keppendur Bretlands á Ólympíuleikunum og Ólympíumótinu," segir Andy Lord hjá flugfélaginu British Airways. „Það er heiður að flytja þúsundir íþróttamanna, þjálfara þeirra og búnað til London í aðdraganda Ólympíumótsins. Við reynum að fylgja á eftir vel heppnaðri þjónustu okkar á Ólympíuleikunum," segir Lord. Keppendur Íslands, þau Helgi Sveinsson, Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, Kolbrún Alda Stefánsdóttir og Jón Margeir Sverrisson, fljúga utan á laugardagsmorgun.
Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Íslenski boltinn Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Fleiri fréttir Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Diljá Ýr komin í undanúrslit bikarsins Freyr ekki lengi án starfs? Amorim kynntur til leiks hjá AC Milan Sjá meira