Innlent

Varað við vindhviðum undir Hafnarfjalli

Reikna má með vindhviðum allt að 30 til 40 metrum á sekúndu undir Hafnarfjalli og á utanverðu Kjalarnesi frá um klukkan sex í kvöld og fram eftir kvöldi. Að sama skapi staðbundið hviðuveður á norðanverðu Snæfellsnesi þar til í fyrramálið.

Vegir eru að mestu auðir um allt sunnanvert landið þó eru hálkublettir á Lyngdalsheiði. Það eru hálkublettir á nokkrum köflum á Vesturlandi, einkum á fjallvegum. Á Vestfjörðum er víða hálkublettir, hálka er á Steingrímsfjarðarheiði og krapi á veginum norður í Árneshrepp.

Aðalleiðir á Norðurlandi eru auðar en sumstaðar eru hálkublettir eða hálka á fáfarnari vegum. Þá er hálka á Breiðdalsheiði á Austurlandi en hálkublettir á Vatnsskarði eystra og Öxi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×