Innlent

Nágranni sá glóð í glugganum

Karlmaður fórst í eldsvoða í Ólafsvík í nótt og annar liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir bruna í Reykjavík í nótt.

Maðurinn sem lést í Ólafsvík var tæplega fertugur. Nágranni tilkynnti slökkviliði um að hann sæi glóð inn um glugga í húsinu á þriðja tímanum í nótt og var mikill hiti og reykur í húsinu þegar slökkvilið kom á vettvang.

Reykkafarar fundu húsráðanda, sem var einn í húsinu, báru hann strax út og hófu lífgunartilraunir. Jafnframt var kallað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem send var af stað, en skömmu síðar var maðurinn úrskurðaður látinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og er lögregla að rannsaka eldsupptök.

Þá liggur Karlmaður þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að slökkviliðsmenn björguðu honum meðvitundarlausum út úr brennandi íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Tungusel í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt.

Önnur manneskja, sem var í íbúðinni, en komst út í tæka tíð, var útskrifuð af sjúkrahúsinu að skoðun og aðhlynningu lokinni. Mikill eldur logaði í íbúðinni og stóðu eldtungur út um einn glugga þegar allt slökkvilið af höfuðborgarsvæðinu kom á vettvang og voru allar íbúðir í tveimur stigahúsum rýmdar af ótta við að reyk gæti lagt inn í þær.

Fjöldahjálparlið Rauðakrossins var kallað á vettvang og strætisvagn var sendur á staðinn til að fólk gæti leitað skjóls, enda var veður vont. Reykræsta þurfti margar íbúðir í húsinu, en sumar eru óíbúðarhæfar eins og stendur og leituðu íbúar þeirra á náðir vina og ættingja í nótt. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×