Ákært fyrir manndráp af gáleysi 29. febrúar 2012 08:00 hjólbarðar Misstór dekk með mismunandi þrýstingi áttu þátt í banaslysi í árslok 2010. Fréttablaðið/GVA
Gefin hefur verið ákæra á hendur tveimur mönnum fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot vegna banaslyss sem varð að kvöldi 27. desember 2010. Þá rákust saman tveir vöruflutningabílar með tengivagna á Norðurlandsvegi í Húnavatnshreppi. Ökumaður bílsins sem talinn er valdur að slysinu er ákærður og aðaleigandi fyrirtækisins sem gerði út bílinn er ákærður fyrir hlutdeild í brotinu. Ökumaðurinn er sagður hafa ekið vöruflutningabifreiðinni norður Norðurlandsveg án nægilegrar aðgæslu, með vélavagn, sem hentaði ekki til flutninga á steinrörum sem á hann hafði verið hlaðið. Þá var vagninn sagður hafa verið bremsulítill eða bremsulaus, á mismunandi stórum dekkjum og með mismunandi loftþrýsting í hjólbörðum. Farmurinn vó 12,1 tonn og náði 2,5 metra hæð. „En rörin höfðu verið sett þvert á vagninn, án lögboðinna klossa framan og aftan við farminn og engra klossa eða styttur til varnar hliðarskriði og farmurinn aðeins bundinn niður að hluta, en ástand vagnsins og háfermi hans skertu rásfestu hans, með þeim afleiðingum að vagninn fylgdi ekki bifreiðinni, heldur leitaði of mikið til vinstri yfir miðlínu vegarins,“ segir í ákærunni. Þetta varð til þess að bíllinn rásaði í veg fyrir annan vöruflutningabíl. Bílstjóri þess bíls lést nær samstundis, þegar steinrör köstuðust inn í ökumannshús bílsins. - óká
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira