Innlent

Karlmaður sem varð fyrir líkamsárás úr lífshættu

Maðurinn varð fyrir alvarlegri líkamsárás og var á milli heims og helju um tíma.
Maðurinn varð fyrir alvarlegri líkamsárás og var á milli heims og helju um tíma.
Karlmaður sem slasaðist lífshættulega eftir alvarlega líkamsárás karlmanns í fjölbýlishúsi á Laugaveginum fyrr í vikunni, er kominn úr lífshættu. Árásarmaðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna árásarinnar sem var hrottafenginn. Fórnarlambið þurfti að gangast undir aðgerð á höfði og virðist aðgerðin hafa heppnast vel.

Árásarmaðurinn á að hafa gengið illþyrmilega í skrokk á manninum í heimahúsi á Laugaveginum Tveir aðrir menn voru á vettvangi en þeir eru ekki grunaðir um að hafa tekið beinan þátt í árásinni. Maðurinn lá svo meðvitundarlaus á stéttinni fyrir utan húsið áður en honum var komið til aðstoðar.

Mennirnir sátu að sumbli þegar þeim virðist hafa lent saman með fyrrgreindum afleiðingum. Þeir eru allir á milli þrítugs og fertugs og hafa komið áður við sögu lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×