Innlent

Kona leitaði til lögreglunnar vegna mannránstilraunar

Kona leitaði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærdag vegna atviks þar sem þrír, fjórir karlmenn á sendiferðabíl eiga að hafa reynt að draga hana nauðuga upp í bíl til sín síðasta föstudagkvöld. Lögreglan staðfestir að kona hafi leitað til lögreglunnar vegna málsins í gær, en það á enn eftir að taka skýrslu af henni. Ráðgert er að það verður gert síðdegis samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.

Atvikið sem um ræðir gengur um á samskiptavefnum Facebook þar sem lýst er eftir vitnum að atburðinum. Þar lýsir kona því þegar mennirnir eiga að hafa reynt að draga yngri systur sína nauðuga upp í bílinn.

Það varð yngri systurinni til happs að vegfarendur áttu leið hjá þegar atvikið átti sér stað og því slepptu mennirnir takinu og sögðu við hana að þeir hefðu verið að grínast. Samkvæmt póstinum gat konan, sem lenti í atvikinu, ekki gefið greinargóða lýsingu á bílnum þar sem henni var verulega brugðið vegna málsins.

Á Facebook-vef lögreglunnar, þar sem skilaboðin má finna, er fólk hvatt til þess að gera lögreglu samstundis viðvart um svona tilvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×